»  skrif  »  Upprisa ofurgellu

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Upprisa ofurgellu
Þriðjudagur, 01. febrúar 2005

Þegar Frank Miller, höfundur myndasagnanna Sin City og The Dark Knight Returns, tók við Daredevil-myndasögunum blés hann nýju lífi í þennan blinda réttargæslumann þeirra sem minna máttu sín í New York.

Sögur Millers um blinda lögfræðinginn Matt Murdock sem skelti sér í rauðan latexgalla á kvöldin og barði á ribböldum urðu sígildar um leið og þær runnu út úr prentvélunum. Enn eru þær lesnar af áfergju um allan heim, nú, rúmlega 20 árum eftir að Miller hlóð sögurnar drungalegri film noir stemningu.

Kærasta Ofurhugans...

Þegar Miller fóstraði Daredevil skóp hann eina eftirminnilegustu myndasögupersónu síðustu áratuga, hina þokkafullu en banvænu Elektru. Þessi dökkhærða, blóðheita, gríska stúlka varð kærasta hins blinda Matts Murdocks á framhaldsskólaárunum en eftir að faðir hennar var myrtur sneri hún baki við ástinni og gerðist einn besti leigumorðingi í heimi.
Faðir Elektru hafði tryggt öryggi hennar og sjálfstæði með því að fá færustu bardagaíþróttamenn heims til að kenna stúlkunni að slást frá unga aldri. Hún er því útlærð í austrænum bardagalistum, flink í meðferð hvers kyns lag- og skotvopna auk þess sem hún er hljóðlátari og skæðari en nokkur ninja.

... þar til dauðinn aðskilur þau

Elektra og Daredevil urðu andstæðingar þegar hún snerist á sveif með illu öflunum en ástin milli þeirra kulnaði aldrei og Matt syrgði þessa æskuást sína lengi eftir að hún féll fyrir hendi morðingjans Bullseye sem Daredevil hafði oft tekist á við í gegnum tíðina. Það var í apríl 1982 sem Bullseye bar Elektru ofurliði og henni blæddi út í örmum fyrrum elskuga síns. Hún lifir samt enn góðu lífi í myndasögum og kvikmyndum enda persóna hennar það svöl að Miller sjálfur gat ekki sleppt af henni hendinni eftir að hann drap hana.
Hann gerði seinna söguna Elektra: Assasin sem er forleikur að ævintýrum hennar í Daredevil. Þessi saga var bullandi pólitísk og það má lesa hana sem ádeilu á stjórnartíð Ronalds Reagan fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Þá brá Elektru af og til fyrir í seinni Daredevil sögum þangað til Miller kom með lokasöguna Elektra Lives Again þar sem daman mætti í öllu sínu veldi. Minni spámenn hafa svo tekið við Elektru og þó hún sé enn löðrandi í kynþokka, vopnfim og hættuleg hefur hún aldrei náð sömu hæðum og hún gerði hjá Miller en hún lifir enn á fornri frægð og heldur vinsældum sínum.

... og hún fær sína eigin framhaldsmynd

Það var vitaskuld ekki hægt að sleppa Elektru þegar ráðist var í gerð kvikmyndar um Daraedevil og Alias-gellan Jennifer Garner var ráðin í hlutverk hennar. Ben Affleck var settur í rauða latexið og hlutverk Daredevils, Colin Farrell lék Bullseye og Michael Clarke Duncan túlkaði tröllvaxna glæpaforingjann Kingpin. Allir voru þessir heiðursmenn hálf utangátta í hlutverkum sínum og myndin olli dyggum Daredevil-aðdáendum þungum vonbrigðum.
Garner þótti þó komast skammlaust frá sínum þætti enda var Elektra besta persóna myndarinnar þó hún væri ekki skugginn af sjálfri sér eins og hún var í sögum Millers. Hún hlaut samt sömu örlög og á prenti og Farrell drap hana í lok myndarinnar.
Elektra lifir samt enn, rétt eins og í bókunum, og er nú mætt til leiks í sinni eigin mynd, Elektra, þar sem Daredevil, Bullseye og Kingpin eru fjarri góðu gamni.
Framleiðendur myndarinnar voru svo ánægðir með Garner í hlutverki hetjunnar að þeir fengu hana til að endurtaka leikinn og nú tekst hún á við ninja-morðingjagengið The Hand. Efniviður myndarinnar er sóttur í ýmsar Elektru- og Daredevil-myndasögur og þannig nýtur Elektra nú handleiðslu Stick (Terence Stamp) sem lífgar hana við og þjálfar hana í drápum.
Stick þessi var mikilvægur í Daredevil myndasögunum og kenndi til dæmis hinum blinda Matt Murdock að beisla ofurkrafta sína. Elektra er ekki jafn ljúf og hún var þegar hún kjassaðist utan í Ben Affleck fyrir tveimur árum og mætir nú til leiks sem kaldrifjaður leigumorðingi. Hún fær það verkefni að drepa flóttamann og unga dóttur hans en þegar hún kemst að því að The Hand er einnig á eftir feðginunum snýst hún þeim til varnar. Elektra fær nefnilega smá samvisku og sér sjálfa sig í ungu stúlkunni og breytist þannig úr morðingja í lífvörð.


| 17:36 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff