»  skrif  »  Réttur framsóknarmaður á röngum stað

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Réttur framsóknarmaður á röngum stað
Þriðjudagur, 15. mars 2005

Ég er frekar langt niðri þessa dagana og óhress með stöðu mína í lífinu. Ég missti nefnilega af feitu djobbi um daginn einungis vegna þess að ég er svifaseinn, utan við mig og hef aldrei kunnað að spila vel úr þeim spilum sem ég er með á hendi

Ég ætti núna, með réttu, að sitja á nýju skrifstofunni minni í Efstaleitinu með bókina Vinsældir og áhrif eftir Dale Carnegie opna á borðinu, brjótandi heilann um hvernig best sé að fá heilan haug gramra undirmanna til þess að líka vel við mig og vinna brosandi undir minni stjórn.
Ég væri nefnilega fréttastjóri Fréttastofu Ríkisútvarpsins ef ég hefði bara haft rænu á því að sækja um starfið. Ég áttaði mig bara of seint á því að staðan væri eyrnamerkt mér, auk þess sem ég ber svo mikla virðingu fyrir því þrautreynda og veðraða fagfólki sem sótti um að það hvarflaði ekki að mér að keppa við það um stöðuna.
Ég sé það núna að ég hefði burstað þetta enda stend ég klár á því að ég bjóði upp á enn sterkari genablöndu en nýi fréttastjórinn. Séra Sigurður Einarsson, langafi minn, gegndi þessu starfi fyrstur manna og Þórarinn Þórarinsson, afi minn, sat í Útvarpsráði í rúma tvo áratugi og var innsti koppur í framsóknarbúrinu þannig að ég hef verið stimplaður framsóknarmaður frá fæðingu.
Mér finnst því (framsóknar)menn hafa leitað langt yfir skammt að fréttastjóra sem væri þeim þóknanlegur. Ég verð að segja það. Og þó mér hafi láðst að sækja um hefði nú verið allt í lagi að slá á þráðinn og benda mér á að starfið biði eftir mér. Það er þó alls ekki öll nótt úti enn og ég geri ráð fyrir að taka við af Jóhanni Haukssyni á Rás 2 innan tíðar. Nú sæki ég í það minnsta um. Ég klikkaði síðast á því að ganga að því sem gefnu að framsóknarmenn væru hættir að hlutast til um mannaráðningar eftir að SÍS fór á hausinn yfirfullt af vanhæfum pabbastrákum í flestum stjórnunarstöðum.


| 15:32 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff