»  skrif  »  Andaði að sér Godard táfýlunni

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Andaði að sér Godard táfýlunni
Föstudagur, 15. apríl 2005

Troma Entertainment er kynlegur kvistur í bandarískri kvikmyndaflóru en fyrirtækið hefur í þrjátíu ár framleitt ódýrar þjóðfélagsádeilur stútfullar af nekt, kynlífi og hryllingi. Félagarnir Micael Herz og Lloyd Kaufman stofnuðu kvikmyndaverið á síðari hluta sjöunda áratugarins með það að markmiði að koma á heimsfriði í gegnum appelsínuhúð.
The Toxic Avenger er eitt frægasta sköpunarverk Troma en hann er óhefðbundin ofurhetja sem verður til þegar nördið Melvin dettur í pott fullan af eiturefnaúrgangi og snýr vörn í sókn og berst gegn glæpum og eineltispúkum.

"Það var miklu meira sjálfstæði í kvikmyndagerð fyrir þrjátíu árum en nú," segir þessi galsafengi spaugari sem minnir svolítið á George W. Bush í góðu skapi í gallabuxunum sínum með skræpótta bindið. Að öðru leyti eiga þessir landar fátt sameiginlegt enda er Kaufman frekar vinstrisinnaður og enn hálfgerður hippi.

"Troma er á svörtum listum í Bandaríkjunum og á í vök að verjast í Bandaríkjunum. Hér áður fyrr voru lög sem hindruðu hringamyndanir í viðskiptalífinu en þau eru öll horfin. Það voru einnig til lög sem ýttu undir sjálfstæða listsköpun en þau eru líka gufuð upp. Það sem eftir stendur eru risavaxnar, djöfladýrkandi samsteypur eins og Sony og Fox. Þær eiga kvikmyndahúsin, myndbandaleigurnar og sjónvarpsstöðvarnar og stjórna markaðnum úti um allan heim. Þær eru jafnvel voldugri en Jóhannes Páll páfi annar eða þriðji eða hvað sem hann heitir," segir Kaufman sem er kominn í ham og myndast við að hengja sig í hálsbindinu sínu fyrir ljósmyndarann. "Ítök stórfyrirtækjanna eru slík að almenningur í Bandaríkjunum sér ekki óháðar myndir nema þær sleppi einhvern veginn fram hjá samsteypunum." Kaufman er þó síður en svo á þeim buxunum að leggja árar í bát og á enn margt eftir ósagt í myndum sínum. "Við erum eins og herpes. Við hverfum aldrei."

Ætlaði að bjarga heiminum

En upp úr hverju spratt Troma? Þið hljótið að hafa risið upp eins og pönkarar í andófi gegn tíðarandanum?
"Ég elska bíómyndir. Það er ekkert flóknara en það. Ég gerði þau mistök að fara í Yale háskólann sem er sá besti í Bandaríkjunum. Ég ætlaði að verða kennari eða félagsráðgjafi. Þetta var sjöundi áratugurinn og ég ætlaði að bæta heiminn. Ég fékk svo bíóbrjálæðing fyrir herbergisfélaga á heimavistinni. Herbergið var lítið og rúmin okkar lágu þétt saman þannig að á næturnar andaði ég Godard táfýlunni af fótunum á honum að mér og Troma varð til. Hann lét mig horfa á allar þessar frábæru myndir eftir John Ford, Renoir, Fritz Lang, Andy Warhol og Leni Riefenstahl og ég smitaðist."

Kaufman segir að það hafi enginn kært sig um að sýna Toxic Avenger þegar hún var tilbúin þar sem fólk áttaði sig ekki á því að um satíru væri að ræða. Satíran er okkar fag og við erum alltaf að fást við félagsleg ágreiningsefni. Við byrjuðum á því að blanda saman gríni og kynlífi í nokkrum myndum en það tíðkaðist ekki þá. Við gerðum það og það gekk vel þannig að Hollywodd hermdi eftir okkur með Animal House, Porky´s og fleiru í þeim dúr. Þeir brutu bara reglurnar með því að nota góða leikara og góð handrit. Við ákváðum því að hætta þessu og leita nýrra viðfangsefna."

Og þá kom hryllingurinn og Toxic Avenger. "Við lásum í Hollywood Reporter eða einhverju álíka blaði að hryllingsmyndin væri ekki gjaldgeng lengur og sögðum við sjálfa okkur: "A-ha!, ef þetta er satt þá förum við út í hrylling," einfaldlega vegna þess að okkur hafði gengið vel að fara gegn sérfræðiáliti. Ég get talað endalaust um Toxic Avenger; þetta er mjög flókið og djúpt verkefni en líka mjög skemmtilegt og sló í gegn."

Getum búið til sprengjur en skiljum ekki einfalda hluti

Þú vilt sem sagt ná til fjöldans, vera séður. En ekki falla fjöldanum í geð?
"Frumkvöðlaverk okkar hafa að einhverju leyti runnið saman við það sem er almennt samþykkt en við megum aldrei fylgja straumnum. Við erum á svörtum listum og útilokaðir frá markaðnum. Þetta er efnahagsleg útilokun og þó að við höfum aldrei verið vinsælli og frægari höfum við aldrei átt jafn erfitt uppdráttar. Okkur er ekki hleypt á myndbandaleigur eða í bíó. Fyrir fimm árum fengust myndirnar okkar sýndar í bandarísku sjónvarpi en ekki lengur. Við erum í sjónvarpi í Frakklandi, á Ítalíu, í Bretlandi og Japan en ekki í Bandaríkjunum. Það verður samt alltaf pláss fyrir Troma vegna þess að við trúum á það sem við erum að gera og tökumst á við samtímann. Í Ameríku erum við enn að deila um fóstureyðingar og hvort kona megi hafa stjórn yfir líkama sínum eða ekki og hvort samkynhneigðir eigi að fá að giftast. Við erum flinkir að búa til sprengjur en getum ekki skilið að konur eigi að fá að ráða yfir líkama sínum."


| 18:26 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff