»  skrif  »  Bandalag snáksins

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Bandalag snáksins
Föstudagur, 15. apríl 2005

Það er fátt sem mér finnst jafn viðbjóðslegt og fjöldasamkomur og þegar hátíðarhöld í miðborg Reykjavíkur eru frátalin leiðast mér engar samkomur meir en tónleikar.
Það er aðeins ein hljómsveit í heiminum sem ég hef raunverulegan áhuga á að sjá á sviði og það er "eitís" hljómsveitin Duran Duran. Ég var nú löngu búinn að gefa upp alla von um að sá draumur yrði að veruleika en nú er allt útlit fyrir að sveitin sé að koma hingað í sumar. Þetta er að vísu 20 árum of seint en ég mæti samt enda verður þetta æði.

Illar tungur hafa í gegnum árin reynt að gera það hallærislegt að fíla Duran Duran en ég lýsi yfir fullum stuðningi við fimmmenningana frá Birmingham eins og gamla fólkið gerir við Presley , Rolling Stones og Bítlana. Ég er meðlimur í félaginu Bandalag snáksins, samtök fólks sem þorir að gangast við Duran Duran en það gerum við ekki síst vegna þess að framlag þeirra er nefnilega merkilegra en margir gera sér grein fyrir og þeir báru höfuð og herðar yfir alla aðra í lagasmíðum, textagerð og tónlistarmyndböndum á níunda áratug síðustu aldar sem er stórlega vanmetið tímabil í tísku- og tónlistarsögunni.

Á þessum árum átti maður daglega von á dauða sínum í kjarnorkustyrjöld. Ronald Reagan var forseti Bandaríkjanna og leit á Rambo sem uppskrift að lausn milliríkjadeilna og heimurinn var allur almennt á heljarþröm. Alnæmið skaut upp kollinum og það var allt að fara til andskotans en á meðan kraumaði lífsgleði í bland við rómantískan trega í tónlistinni.

Lífið gengur í hringi og nú er allt aftur að fara til andskotans og þá koma þessar hetjur mínar loksins til landsins. Þetta er karma og í sumar fer ég á popptónleika og get sungið með vegna þess að ég kann alla textana. Þetta er nefnilega þegar upp er staðið yndislegt líf þó Bush hafi tekið við af Reagan, Osama bin Laden gangi laus og Kárahnjúkar séu að sökkva.


| 18:07 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff