»  skrif  »  Beið ekki varanlegan skaða

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Beið ekki varanlegan skaða
Þriðjudagur, 19. apríl 2005

Sænski leikarinn Björn Almroth hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir leik sinn í hinni umdeildu kvikmynd Ett hål i mitt hjärta eftir Lukas Moodysson. Hann var viðstaddur frumsýningu myndarinnar í Háskólabíói og svaraði spurningum áhorfenda að lokinni sýningu. "Þetta var fínt," segir Björn um stemninguna í salnum, "en það var greinilegt að fólki var nokkuð brugðið. Það er alveg eðlilegt og ég er orðinn vanur því."

Björn leikur unglingspilt sem býr hjá föður sínum sem framleiðir klámmyndir frammi í stofu á meðan drengurinn lokar sig af í herberginu sínu og hlustar á tónlist. Myndin er áleitin og nærgöngul og það fer ekkert á milli mála að gerð hennar hefur reynt verulega á leikarana.

Björn segist þó ekki hafa beðið varanlegan skaða af myndinni. "Þetta tók samt á andlega. Ég lifði mig inn í hlutverkið og tengdist persónunni sterkum böndum þannig að þetta var erfitt en það er frábært að hafa fengið tækifæri til þess að taka þátt í þessu," segir Björn og sparar ekki lofið þegar talið berst að leikstjóranum. "Lukas er einn besti kvikmyndaleikstjóri í heimi og ég naut þess að fá að vinna með honum."

Björn segir að myndin hafi verið unninn hratt og að tökur hafi staðið yfir í nokkrar vikur. Myndin gerist meira og minna öll í sömu subbulegu blokkaríbúðinni. "Við bjuggum öll í íbúðum í sömu blokkinni en reyndum að vera sem minnst í þessari íbúð þegar við vorum ekki að taka. Ég var mest í minni íbúð að spila Play Station en um leið og maður gekk inn í íbúðina heltist drunginn yfir mann og maður fór strax í karakter."

Ett hål i mitt hjärta er fyrsta kvikmyndin sem Björn leikur í og hann veit lítið hvað tekur við í framtíðinni. "Ég er að leika á sviði í Stokkhólmi um þessar mundir en það getur vel verið að ég leiki í annarri bíómynd. Ég var búinn að leika eitthvað smá með áhugaleikfélögum áður en ég fékk þetta hlutverk og nú sé ég bara til hvað gerist næst. Ég er bara 19 ára þannig að það er allt opið."

Björn segir athyglina sem Ett hål i mitt hjärta hefur fengið vissulega hafa haft áhrif á líf sitt en aðallaega þegar kemur að ferðalögum. "Við fáum mikið að ferðast í tengslum við myndina og þannig verð ég til dæmis í Singapúr í næstu viku sem er frábært."


| 13:07 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff