»  skrif  »  Che borgaði leiguna

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Che borgaði leiguna
Þriðjudagur, 19. apríl 2005

Vegur leikarans unga Gael García Bernal hefur vaxið hratt á undanförnum árum en ævintýrið hófst með hinni mögnuðu Amores perros sem sló óvænt í gegn árið 2000. Bernal lék einnig í El Crimen del padre Amaro árið 2002 og tvær nýlegar myndir með honum í aðalhlutverkum, Diarios de motocicleta og La Mala education, eftir Pedro Almódovar, ber hátt á IIFF 2005 kvikmyndahátíðinni.

Bernal leikur Che Guevara með miklum tilþrifum í Mótorhjóladagbókunum en þetta er í annað sinn sem hann túlkar byltingarleiðtogann. "Fyrra skiptið var í mjög slæmri sjónvarpsmynd en það hjálpaði mér að borga húsaleiguna," segir Bernal og hlær. Hann lagði öllu meiri metnað í Ernesto Guevara fyrir síðari atrenuna.

Bernal og Che

"Það er auðvitað erfitt að nálgast risavaxna persónu hans en ég treysti bara á það að flókinn persónuleikinn myndi skína í gegn og gekk út frá honum sem ungum 23ja ára gömlum Suður-Ameríkana sem ferðast um meginland sitt og leitar róta sinna. Það má segja að þessi lýsing hafi átt jafn vel við sjálfan mig og Ernesto á þessum tímapunkti. Annars kastaði ég mér bara út í það upplýsingaflóð sem til er um tíðarandann á æskuárum Ches; stjórnmálaskoðanir hans, það hverja hann umgekkst, hvaða bækur hann las, hvaða tónlist hann hlustaði á og hvaða bíómyndir hann sá. Þetta skiptir allt máli og þegar þetta liggur allt ljóst fyrir getur maður leikið sér með það. Þetta er svolítið eins og hjá Picasso, þar sem maður verður að kunna reglurnar áður en maður brýtur þær."

Undraheimur Almódovars

Bernal segir að það hafi verið allt öðruvísi að vinna með Almódovar að gerð La Mala education en Walter Salles að vegamyndinni um Che. "Almódovar er sérstakur, þar sem hann segir sögur sem eru mjög ótrúlegar um leið og þær eru mjög raunsæjar. Hann ætlar sér samt alls ekki að endurspegla raunveruleikann, heldur skapar hann heim sem er keimlíkur okkar heimi en persónurnar í þessum heimi hans eru ótrúlega melódramatískar og svo leikur hann sér með þær þannig að þetta verður mjög, mjög alvarlegur farsi."

Bernal segist ekki geta annað en haft gaman að því hve ferill hans hefur náð góðu flugi á skömmum tíma. "Þegar ég vann að myndunum sem komu mér á kortið vissum við ekki einu sinni hvort þær yrðu sýndar í kvikmyndahúsum. Þannig var þetta með Amores perros, en þegar ég hafði lokið störfum við hana í Mexíkó og fengið 1000 dollarana mína greidda spurði ég framleiðendurna hvort ég gæti fengið myndina fullkláraða á myndbandi til þess að sýna fjölskyldu minni og vinum."

Óvænt Íslandsheimsókn

Bernal eyddi helginni óvænt á Íslandi en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að fá hann til að vera viðstaddan sýningar á Mótorhjóladagbókunum í Háskólabíó sá hann sér ekki fært að koma hingað þar sem hann er upptekinn við æfingar á Blóðbrúðkaupi Gabríels García Marques sem verður frumsýnt í London í byrjun maí. Björn Hlynur Haraldsson leikur á móti Bernal í verkinu og þeim hefur orðið vel til vina og hann fékk Bernal til að skreppa með sér til Íslands yfir helgina.

"Björn er frábær náungi og það er mjög gott að vinna með honum. Það hefur verið mjög lærdómsríkt. Hann er mjög hugrakkur leikari. Annars vinnur fólk úr öllum heimshornum að þessu verki og við höfum lært mjög mikið hvort af öðru. En það er sem sagt alger tilviljun að ég er hingað kominn núna en eftir að Hlynur sagði mér að þetta væri aðeins tveggja tíma flug ákvað ég að slá til."

Helgarfrí Bernals varð þó ekkert frí, þar sem yfir hann helltust viðtöl og kynningar í tengslum við kvikmyndahátíðina. "Já, ég er dauðþreyttur og næ ekki mikið að hvíla mig á Íslandi en það er vel þess virði þó ekki væri nema bara fyrir það að vakna í morgun og sjá íslenska morgunkomu sem er gerólík öllu sem ég þekki að heiman."

Bernal og Björn Hlynur héldu til London í gær þar sem þeirra bíða stífar æfingar á sviði í borginni.


| 13:02 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff