»  skrif  »  Draugagangur í skyndibitum

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Draugagangur í skyndibitum
Þriðjudagur, 19. apríl 2005

Blaðamenn eru alltaf að hitta fólk og tala við fólk. Þetta er stærsti bónusinn við djobbið og það sem gerir það að fíkn. Viðmælendurnir eru auðvitað jafn misjafnir og þeir eru margir og suma vildi maður gjarnan losna við að tala við en inn á milli leynast kynlegu kvistirnir sem gefa þessu öllu saman tilgang. Bæði starfinu og mannlífinu öllu.

Ég hitti einn slíkan í síðustu viku. Kengruglaðan kvikmyndaframleiðanda frá Ameríku sem heitir Lloyd Kaufman. Hann er gamall hippi sem enn siglir gegn meginstraumnum og býr til súrar, skrýtnar og klikkaðar þjóðfélagsádeilur fyrir lítinn pening. Þessi öðlingur bjargaði fyrir mér þeim degi, ef ekki allri vikunni og jafnvel næstu mánuðum. Það er ekki oft sem maður tekur viðtal þar sem bæði blaðamaður og ljósmyndari kútveltast af hlátri yfir viðmælandanum en Kaufman náði þessum áhrifum fram, fyrirhafnarlaust, bara með því að vera til.

Samtalið hélt áfram og varð skemmtilegra eftir að slökkt var á bandinu og viðfangsefnið hefði hæglega geta farið úr litlu viðtali með einni mynd yfir í ríkulega myndskreytta bók, slíkur var vaðallinn, æðibunugangurinn og látbragðið á þessum æringja. Hann var að dútla við handritið að næstu mynd sinni í flugvélinni á leið til Íslands en í henni ætlar hann að deila á skyndibitamenninguna. Sögusviðið verður kjúklingastaður sem er reistur á fornum indíánagrafreit. Andar hinna framliðnu taka sér bólfestu í hráefninu og menga kjúklingabitana þannig að mikið fjaðrafok byrjar þegar neytendur breytast í undarlega uppvakninga.

Þetta er alveg dásamleg della sem á greiniega brýnt erindi við samtímann. Við þurfum fleira fólk eins og Kaufman á þessum litlausu tímum markaðs - og peningahyggju þar sem öll neyslustýring beinist að því að gera alla eins.


| 13:10 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff