»  skrif  »  Háhyrningur og stórmeistari

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Háhyrningur og stórmeistari
Föstudagur, 15. apríl 2005

Ég eyddi hluta af sumarfríinu mína í fyrra í baráttu Íslendinga fyrir því að fá Bobby Fischer leystan úr varðhaldi í Japan. Fischer á inni hjá Íslendinum. Það er engin spurning og mér fannst ekkert sjálfsagðara en að þjóðin legði þessum andlega vanheila manni lið í baráttunni við ranglætið. Þá ber ég mikla virðingu fyrir snilligáfu Fischers og afrekum hans við skákborðið. Ég ber einnig óendanlega virðingu fyrir einlægni hins hjartahreina Sæma rokk, sem er sannkallaður vinur í raun. Mér finnst Davíð Oddsson þar að auki ferlega svalur en í þessu máli hefur hann sýnt að enginn íslenskur stjórnmálamaður stendur honum jafnfætis þegar kemur að töffaraskap.

Mig óraði satt best að segja ekki fyrir því í upphafi að Fischer myndi fá frelsi, og því síður að hann kæmi til Íslands, og ég kæri mig mátulega um að hann sé kominn hingað. Það breytir því ekki að við eigum að vera góð við geðsjúka og umvefja þá hlýju frekar en að loka þá af í þröngum fangaklefum. Ég hélt líka að baráttan snerist einmitt um það en ekki að flytja manninn til Íslands og gera hann að hirðfífli í fjölmiðlasirkusi.

Frá því að Fischer steig um borð í þotuna á leið til Íslands hefur atburðarásin verið fáránleg og ég vil ekki vita meira. Ég hélt að vísu þegar vélin lenti að Páll Magnússon hefði rænt rangri vél og Fídel Kastró væri mættur til landsins með CIA á hælunum. Þegar betur var að gáð var þetta þó Fischer og bjánagangurinn í kringum komu hans minnti mest á það þegar Keikó kom til landsins. Þeir Keikó og Fischer eiga líka margt sameiginlegt og munu væntanlega hljóta svipuð örlög á Íslandi. Það var endalaust vesen í kringum Keikó, sem gerði fátt annað en að riðlast á gúmmídekkjum, og Fischer mun sjálfsagt fyrst og fremst verða okkur til skammar með álíka bægslagangi og munnsöfnuði. Eini munurinn er sá að Fischer verður líklega að deyja á Íslandi þar sem Norðmenn munu aldrei losa okkur við hann.

Stuð milli stríða


| 14:03 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff