»  skrif  »  Horft fram hjá goðsögninni

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Horft fram hjá goðsögninni
Föstudagur, 15. apríl 2005

"Þetta er áhugavert vor hjá ykkur. Ég kom hingað beint í frostið úr 42 stiga hita í Brasilíu," segir brasilíski kvikmyndaleikstjórinn Walter Salles sem opnaði IIFF 2005 kvikmyndahátíðina með, Motorcycle Diaries, margverðlaunaðri mynd sinni um mótorhjólaferðlag Ernesto Guevara um Suður-Ameríku.

"Mig hefur lengi langað að koma hingað eða alveg frá því ég hitti Friðrik Þór
Guðmundsson
á kvikmyndahátíð og sá Börn náttúrunnar. Litli bróðir minn, sem er heimildarmyndagerðarmaður, eyddi líka áramótunum hérna einu sinni og fannst svo gaman að það lá við að við þyrftum að senda einhvern hingað til að draga hann aftur heim til Brasilíu."

Salles byggir mynd sína á dagbókum sem Guevara hélt þegar hann ferðaðist um Suður-Ameríku, 23 ára gamall, löngu áður en hann varð byltingarhetjan Che. "Dagbækurnar fundust í bakpoka árið 1993 og ég hef alið þann draum í allmörg ár að kvikmynda þær. Bókin á svo sterkar rætur í þjóðarvitund Suður-Ameríkana að ég sá strax að hana yrði að taka í Suður-Ameríku á spænsku. Það er svo Robert Redford að þakka að ég gat gert það. Hann las bækurnar og tryggði sér kvikmyndaréttinn og var alveg sammála mér um að myndina mætti ekki gera í Hollywood."

Che er dýrkaður í Suður-Ameríku og er fyrir löngu orðinn íkon og einhvers konar menningarfyrirbæri. Hvernig nálgast maður svona persónu í kvikmynd?

"Með því að horfa fram hjá goðsögninni á veggspjöldunum og stuttermabolunum. Bókin lýsir Ernesto eins og hann var áður en hann varð Che. Þetta er ungur maður sem er að reyna að átta sig á því hvað hann ætlar að gera í lífinu. Ég er ekki að fást við íkonið heldur ungan mann sem er fullur efasemda og óöryggis."

Motorcycle Diaries hefur slegið í gegn úti um allan heim en viðtökurnar komu Salles verulega á óvart. "Okkur óraði ekki fyrir því að 10 milljón manns úti um allan heim myndu sjá myndina. Við vorum ekkert að hugsa um það á meðan við tókum hana. Við einbeittum okkur aðeins að sögunni og innihaldi hennar og gáfum okkur öll í það. Síðan komu öll verðlaunin, vinsældirnar og öll lætin. Það sér ekki fyrir endann á þessari ferð en mótorhjólið er núna að ferðast yfir Ísland."


| 18:14 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff