»  skrif  »  12 spor í geimnum

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
12 spor í geimnum
Mánudagur, 09. maí 2005

Af öllum þeim bókum sem ég hef lesið og kvikmyndum sem ég hef séð hefur ekkert verk haft meiri og djúpstæðari áhrif á mig en fyrsta Stjörnustríðsmyndin sem George Lucas gerði árið 1977. Hún er ekki merkilegur kvikmyndakveðskapur; byggir á hundgamalli ævinýraformúlu, er frekar illa leikin og samtölin sem Lucas skrifar eru, á köflum, með því versta sem sögur fara af. Samt býr þessi mynd yfir einhverjum galdri og áhrifamáttur hennar fer síður en svo dvínandi þó það séu 28 ár síðan hún flutti heilu kynslóðirnar langt aftur í tíma til vetrarbrautar sem er langt, langt í burtu.

Ég gleymi því aldrei hversu mikið sjokk ég fékk í myrkrinu í Nýja bíói þegar Svarthöfði sagði Loga Geimgengli að hann væri faðir hans í framhaldsmyndinni Keisaraveldið snýr aftur. Ég þurfti að láta segja mér þetta þrisvar enda of ungur til þess að skilja hversu risavaxinn og stórfenglegan fjölskylduharmleik Lucas var með í huga þegar hann lagði drögin að sex þátta geimóperunni sinni sem hann lýkur loks með glæsibrag í The Revenge of the Sith sem kemur í bíó fyrir mánaðarmót.
19. maí verður lengi í minnum hafður og haldinn hátíðlegur hjá nördum og börnum á öllum aldri þegar meistarinn bætir fyrir tvær slappar Stjörnustríðsmyndir í röð með mögnuðum lokakafla sem fjallar um stærsta fall kvikmyndasögunnar en dramatíkin í kringum viðsnúnig hetjunnar Anakins sem gefur sig hinu illa á vald og verður Svarthöfði er með ólíkindum.
Eins og öll mörnuð listaverk vekur Stjörnustríð upp ólíkar kenndir og hugsanir hjá hverjum og einum. Sjálfur hef ég skipt um túlkunarleiðir á sögunni oft og mörgum sinnum í gegnum árin og þess stundina skoða ég myndirnar sem alkadrama. Oflæti, gremja og hatur sem kraumar í Anakin verður til þess að hann gefur sig illa Keisaranum (Bakkusi) á vald. Áfengi lætur gott fólk gera vonda hluti og Svarthöfði vinnur hroðaleg illvikri í illskuvímu þar til meðvirkur sonur hans, Logi Geimgengill, brýtur upp sjúkt fjölskyldumynstrið og bjargar föður sínum.
Anakin fellur með látum í sumar og hans bíður 12 spora þrautaganga aftur á bak þar til hann rís upp sem ábyrgur fjölskyldufaðir í The Return of the Jedi.
Mátturinn er mikill og megi hann vera með okkur öllum.


| 16:49 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff