»  skrif  »  Aðdáendurnir héldu sveitinni saman

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Aðdáendurnir héldu sveitinni saman
Miðvikudagur, 25. maí 2005

Simon Le Bon hefur verið í forsvari fyrir hljómsveitinni Duran Duran í rúm 20 ár. Sveitin mun spila á tónleikum á Íslandi í júní en þeirra hefur verið beðið með eftirvæntingu síðan á níunda áratug síðustu aldar. Þórarinn Þórarinsson ræddi við söngvarann um forna frægð og bjarta framtíð Duran Duran sem tekur sér langlífi Rolling Stones til fyrirmyndar.

Breska hljómsveitin Duran Duran er væntanleg til landsins í júní eins og alþjóð veit og mun spila á tónleikum í Egilshöll þann þrítugasta júní. Íslenskir aðdáendur Duran Duran hafa beðið þeirra í ofvæni í rúm 20 ár en þeir létu þó ekki sjá sig þegar sveitin var á hátindi frægðar sinnar. Simon segist þó fullmeðvitaður um að nærveru þeirra hafi lengi verið óskað. "Það hefur samt aldrei áður komið til tals að fara til Íslands og ég hlakka mikið til."

Vinsældirnar breyttust í geðveiki

Duran Duran sló í gegn með fyrstu stóru plötunni sinni sem bar nafn sveitarinnar árið 1981 og vinsældunum var fylgt eftir með fullum þunga árið 1982 með breiðskífunni Rio, Seven and the Ragged Tiger, sem almennt er talin besta plata Duran Duran, ári síðar og svo kom tónleikaplatan Arena út árið 1984 en þá var sveitin á hátindi frægðar sinnar. En var þetta ekki of mikið og má kannski segja að sveitin hafi brennt sig upp á of stuttum tíma?

"Unnum við of mikið eða vann ég of mikið? Ég veit það ekki, maður gerir eins mikið og maður getur og við unnum vissulega mikið. Það var svo árið 1984 sem við fundum að langþreyta var farin að gera vart við sig og við sögðum við sjálfa okkur að þetta væri orðin geðveiki. Við vorum of mikið í sviðsljósinu og vissum að þetta myndi enda með því að allir fengju ógeð á okkur og þess vegna skiptum við liði og stofnuðum hljómsveitirnar Arcadia og Power Station."

Upplausn og stefnubreyting

Bassaleikarinn John Taylor og gítarleikarinn Andy Taylor gengu til liðs við söngvarann Robert Palmer og spiluðu amerískt iðnaðarrokk í Power Station á meðan Simon, hljómborðsleikarinn Nick Rhodes og trommarinn Roger Taylor voru á rólegri nótum í Arcadia. "Roger ákvað síðan að koma ekki aftur í Duran Duran og Andy fór svo sömu leið í framhaldinu en þessar ákvarðanir þeirra snerust um allt önnur mál," segir Simon og vill ekki eyða mörgum orðum í upplausn sveitarinnar.

Simon, John og Nick héldu áfram að starfa undir merkjum Duran Duran og gáfu út breiðskífuna Notorious árið 1986. Platan er metnaðarfull og vönduð en ansi frábrugðin Seven and the Ragged Tiger og það má segja að hún sé frekar rökrétt framhald af því sem Nick og Simon voru að gera í Arcadia.

Notorius vorum við að teygja Duran Duran-sándið eins langt og við gátum. Ég var mjög upptekin af textum og melódíu á þessum tíma en það eru takmörk fyrir því hversu langt þú getur farið með melódíuna, nema auðvitað að þú sért Björk. Þá geturðu gert allan andskotann og allt sem þú vilt. Björk er yndisleg og við elskum hana allir. Hún er mjög góður vinur okkar."

Aðdáendurnir björguðu bandinu

Það eru líklega fáar hljómsveitir sem geta státað af jafn tryggum aðdáendum og Duran Duran en ótrúlega stór hópur hefur staðið með þeim í gegnum súrt og sætt og keypt plöturnar þeirra þrátt fyrir alls konar manna- og stefnubreytingar. "Aðdáendur okkar eru alveg ótrúlegir og þeir héldu okkur saman. Þegar John hætti í bandinu á árunum 1997 til 2001 leið mér oft mjög illa. Þetta voru erfið ár og sveitin hefði getað lagt endanlega upp laupana hvenær sem var. Þá voru það aðdáendurnir sem héldu okkur virkilega saman."

Simon segist oft finna fyrir því að aðdáendur Duran Duran virði þá félaga fyrir að hafa aldrei lagt árar í bát. "Þetta er mjög skemmtilegt og það hefur komið mér á óvart hversu traustir aðdáendur okkar eru. Ég man eftir dómi frá því við vorum að byrja. Ég held að hann hafi birst í NME en þar sagði að tónlist okkar væri eins og gárur í gruggugri tjörn og að hún væri svo gagnsæ að hún myndi gleymast á einu ári.
Í fyrra las ég það svo í Daily Telegraph í umsögn um nýju tónleikaferðina okkar að eins undarlega og það kynni að hljóma þá yrðum við ef til vill næstu Rolling Stones Bretlands hvað úthald varðar. Ég veit ekki hvort þetta mun ganga svo langt en það var frábært að sjá að einhver sá enn lífsmark með okkur."

Lífsháski og lífsgleði

Aðdáendur Wham og Duran Duran háðu heilagt stríð á Íslandi á gullöld hljómsveitanna og Simon segist ekki hafa farið varhluta af þessum deilum sem hafi einnig geysað á heimavelli. "Þegar ég var að að keppa í kappsiglingu á skútunni Drum og hún sökk og ég drukknaði næstum því þá sást til kafbáts merktum Wham! í nágrenninu," segir Simon og hlær en þessi brandari segir líklega meira en þúsund orð um stöðu mála í þá daga.

Simon segist aðspurður ekki sakna gömlu, góðu dagana og er mjög afdráttarlaus. "Nei. Ég er ekki sú manngerð sem festir sig í nostalgíu en ég lít stundum til baka og brosi yfir öllu sem við gerðum í gamla daga en ég á mér líka líf núna. Ég er í frábærri hljómsveit og við erum að gera frábæra nýja tónlist og getum spilað á tónleikum fyrir fólk sem vll sjá okkur hér og nú. Svo á ég fjölskyldu þannig að ég á mér líf."

Klikka ekki á gömlu lögunum

Þegar vinsældir Duran Duran voru sem mestar var sveitin fengin til að semja titillag James Bond-myndarinnar A View to a Kill. Það var mikið gert með það í fjölmiðlum á sínum tíma að þetta væri nánast lokatakmark strákanna þar sem þeir væru allir miklir James Bond-aðdáendur. Simon dregur úr þessu og finnst umræðan hafa verið orðum aukin. "Tjah... ég er mjög hrifinn af James Bond sem slíkum. Las bækurnar og hafði gaman af gömlu myndunum með Sean Connery. Annars fannst okkur það bara góð hugmynd að blanda saman Duran Duran og Bond og kýldum á það og það virkaði vel."

Simon segist geta lofað gömlum aðdáendum sínum að þeir muni fá að heyra alla helstu slagara Duran Duran í Egilshöll í sumar. "Við verðum með gamalt efni og nýtt í bland enda erum við nýbúnir að gefa út góða nýja plötu. Við munum að sjálfsögðu ekki svíkja ykkur um Save a Prayer." Save a Prayer er sjálfsagt eitt vinsælasta "kveikjaralag" níunda áratugarins en Simon bendir á að þeir sem reykja ekki geti bara kippt farsímunum sínum upp úr vasanum og kveikt ljósið á þeim þegar þeir byrja að spila lagið.

Gaman að gera eitthvað nýtt

Þegar Simon er beðinn um að líta um öxl yfir ferilinn og plöturnar og nefna einhverja plötu sem er í sérstöku uppáhaldi hjá sér segir hann að engin eldri plata sé sér hjartfólgnari en önnur. "Nýja platan okkar er mér mjög kær og okkur finnst hún sérstök þar sem hún sannar að við höfum hæfileika til þess að lifa af. Hún er ný og við njótum þess að spila nýtt efni þannig að þegar við gerum næstu plötu þá mun okkur þykja enn vænna um hana," segir Simon Le Bon sem þarf ekki að lifa á fornri frægð Duran Duran þar sem bæði hann og félagar hans fjórir eru enn í toppformi.


| 15:09 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff