Fimmtudagur, 05. maí 2005
Það er eitthvað óendanlega skondið við það að þrír prúðir drengir sem fíflast í sjónvarpi skuli vera orðnir að stórkostlegu samfélagsmeini en foreldrar sem ekki nenna að ala börnin sín upp ruku upp til handa og fóta nýlega og kröfðust þess að þátturinn Strákarnir á Stöð 2 verði færður aftur fyrir háttatíma á dagskrá Stöðvar 2.
Strákarnir fara á kostum með alls konar uppátækjum og blessuð börnin apa auðvitað eftir þeim vitleysuna og eru samkvæmt kvörtunum foreldra að drekka ógeðsdrykki allan liðlangan daginn, pissa á sig eða vini sína í svokölluðum áskorunum og jafnvel troða sér inn í þvottavélar.
Þegar ég var krakki léku börn sér úti frá morgni til kvölds, brutu rúður, slógust, átu pöddur, drukku drullupolla, óðu skítalæki, brenndu sinu, stofnuðu sér í lífshættu í nýbyggingum og háðu heilu hverfastyrjaldirnar sem margar hverjar enduðu á Slysó. Strákarnir á Stöð 2 voru í bleyju þegar þessi ósköp dundu yfir en þá amaðist fólk við Tomma og Jenna og öðru stórskaðlegu sjónvarpsefni sem ýtti undir andfélagslega hegðun.
Ég stóð í þeirri meiningu að íslenskir krakkar væru orðnir svo feitir af slímusetum fyrir framan leikjatölvur og sjónvarp að þau hvorki kynnu né nenntu að leika sér þannig að ég sá gleðitíðindi í fréttum af stóra Strákamálinu.
Krakkar eiga að vera ódælir, hlaupa á girðingar, sjá hversu langt þau komast og finna mörkin sem foreldrarnir eiga að draga. Þeir foreldrar sem hafa ekki betri tök á börnum sínum en svo að þeir geta ekki stýrt fjölmiðlaneyslu þeirra sjálfir og koma ábyrgðinni yfir á sjónvarpsstöðvarnar eru ekki til stórræðanna í uppeldinu. Enda nenna þeir ekki að ala ormana upp og væri nær að þrýsta á að Strákarnir verði gerðir að Play Station-leik en þá geta börnin tekið áskorunum og pissað á sig í sýndarveruleikanum og haldið áfram að safna spiki frekar en að valda foreldrum sínum áhyggjum með því að leika sér eins og barna var siður.
| 15:57 |