Laugardagur, 11. júní 2005
Aðlaganir myndasagna að kvikmyndaforminu verða áberandi í sumar en á næstu vikum og mánuðum eru væntanlegar þrjár stórmyndir, Batman Begins, Sin City og Fantastic Four, sem allar byggja á þekktum myndasögupersónum og ævintýrum þeirra.
Batman þarf auðvitað ekki að kynna og þeir sem lásu svokölluð "hasarblöð" í æsku kannast flestir við hetjurnar sem kenndar eru við Fantastic Four. Í báðum tilfellum eru því á ferðinni heimsþekktar ofurhetjur en í Sin City kveður við annan tón þar sem viðfangsefnið er öllu jarðbundnara með glæpi, morðingja og vændiskonur í forgrunni.
Frank Miller, höfundur Sin City bókanna, er einn athyglisverðasti myndasöguhöfundur samtímans og er vægast sagt funheitur um þessar mundir eftir að Robert Rodriguez gerði Sin City myndina upp úr þremur bókum hans úr Sin City flokknum. Miller sækir stíft í harðsoðna reyfara Raymonds Chandlers, Dashiells Hammett og James M. Cain í Sin City bókunum sem greina frá lífi og dauða geðsjúklinga, spilltra og heiðarlegra lögreglumanna, vændiskvenna og súlustelpna í Basin City, einu ömurlegasta lastabæli sem hugsast getur.
Frábærar teikningar Millers eru svo bergmál film noir glæpamyndanna sem áttu sína gullöld á árunum 1941 til 1958 og byggðu oftar en ekki á verkum áðurnefndra rithöfunda. Þegar höfundarverk Millers er skoðað kemur ekki á óvart að film noir heimurinn hafi heillað hann en hann er mjög upptekinn af karlmennsku og töffaraskap þannig að testósteronið kraumar í bókum hans og nægir í því sambandi að nefna snilldarverkið 300 sem byggir á frækilegustu vörn mannkynnsögunnar þar sem Leonídas Spartverjakonungur, berrassaður og vöðvastæltur, verst Persum ásamt 300 manna liði sínu í Laugaskörðum. Þar fyrir utan hefur Miller gert frábæra hluti með Daredevil og skóp í þeim sögum sínum morðkvenndið Elektru auk þess sem hann hristi heldur betur slenið af Batman í bókunum Batman: Year One, Batman: The Dark Knight Returns og Batman: The Dark Knight Strikes Again. Í Year One segir Miller sköpunarsögu Batmans á sinn hátt en í þeim tveimur síðarnefndu vekur hann Bruce Wayne af værum blundi eftirlaunaáranna og stefnir honum gegn glæpahyski Gotham borgar á ný.
Hinn fornfrægi leikari Mickey Rourke rís upp úr öskustó fíkniefnaneyslu og aumingjaskapar í hlutverki Marvs, lykilpersónu í Sin City bálknum, og leiksigur hans og frábærar viðtökur aðdáenda Millers við Sin City myndinni hafa glætt vonir fólks um að Dark Knight bækur hans fái sömu meðferð og þá þykir ljóst að hinn veðraði Rourke yrði kjörinn í hlutverk lemstraðs Leðurblökumannsins á efri árum.
| 13:54 |