Laugardagur, 11. júní 2005
Það er óhætt að segja að bandaríski spéfuglinn Jim Rose hafi farið eigin leiðir í skemmtanabransanum en hann hefur vakið heimsathygli með sirkusnum sínum þar sem hann leiðir undarlegt fólk fyrir áhorfendur og lætur það fremja ýmsa stórundarlega gjörninga sem engum heilvita manni dytti í hug að reyna að leika eftir.
Sirkusinn hefur heldur betur komið Rose á kortið en hann er með eigin sjónvarpsþætti, hefur skrifað metsölubækur og leikið í kvikmyndum, tölvuleikjum og sjónvarpsþáttum. Nægir þar að nefna leik hans í The X-Files auk þess sem sirkusinn hans hefur komið við sögu í þætti um Simpson-fjölskylduna.
Langþráð Íslandsheimsókn
Rose hefur lengi haft hug á því að sækja Ísland heim og lætur loks af því verða í sumar. "Ég hef farið í níu heimsreisur með sirkusinn og að þessu sinni vildi ég endilega koma við á Íslandi", segir bandaríski furðufuglinn Jim Rose sem hefur vakið mikla athygli með furðufuglasýningu sinni sem hann kallar Sirkus Jim Rose.
"Ég gaf út bók ekki alls fyrir löngu og útgefandinn minn var um svipað leyti að gefa út bók um Ísland. Bókin vakti strax athygli mína og eftir að ég las hana hef ég lesið miklu meira um landið og er orðinn mjög forvitinn."
Jim treður upp á Broadway þann 28. júlí með sex manna fyrirbæragenginu sínu en ætlar einnig að nota Íslandsheimsóknina til þess að kynna sér land og þjóð. "Maður fer örugglega eitthvað út í sveit og svo ferður maður eitthvað fullur og timbraður í Reykjavík."
Það er óhætt að segja að sýning Jims sé ekki fyrir viðkvæma og aldurstakmark er því 18 ár en auk þess sem furðufyrirbærin hans setja músagildrur á tungur sínar, gleypa rakvélablöð og herðatré lyfta þau rafgeymi úr bíl með geirvörtum sínum og skjóta sér úr fallbyssu. Þetta er aðeins brot af því sem Rose ætlar að bjóða upp á á Broadway og hann segist stefna að því að brydda upp á einhverjum nýjungum fyrir Íslendinga.
Klámstjarna og sirkusdrottning
"Ég er að láta finna rafknúna sláttuvél fyrir mig og að öllum líkindum munn einn manna minna tylla henni á efri vör sína. Annars er ég alltaf að breyta um mannskap og atriði. Þegar ég kem til Íslands verður glæsileg sirkusdrottning, BeeBee, í för með mér. Hún er gullfalleg og við munum skjóta henni úr falbyssu þannig að það má segja að hún leysi Hómer Simpson af í því atriði þar sem hann kemur ekki með okkur." Rose bætir því við að BeeBee geri ýmsar aðrar kúnstir með kynfærum sínum en nánari útlistanir á því eiga ekki heima í jafn sómakæru blaði og Fréttablaðinu.
"Hinn gullfallega og glæsilega Amber lætur einnig til sín taka með okkur. Hún er 22 ára og hefur leikið í nokkrum klámmyndum. Hún leikur listir sínar með svipu og lyftir lóðum með brjóstunum. Í lok sýningarinnar dreifum við svo helling af smokkum yfir áhorfendur og sá sem er svo heppinn að fá bláan smokk fær að eyða klukkustund með Amber baksviðs. Amber kann einnig mjög vel við konur þannig að það breytir engu þó blái smokkurinn falli ekki karlmanni í skaut. Verði kona fyrir valinu má svo alltaf skoða skipti og fá einhvern kraftakarlinn til að hlaupa í skarðið fyrir Amber," segir Rose og hlær svo óræðum hlátri að það er ekki nokkur leið að átta sig á hvort honum sé alvara.
Heimsfrægur eftir mótorhjólaslys
Rose vann árum saman í sirkus áður en hann sló í gegn undir eigin nafni. "Ég þvældist með en var mest í því að selja kók og pulsur á sýningum þangað til ég hækkaði í tign og varð áhættuleikari með það hlutverk að stökkva á mótorhjóli yfir 48 bíla. Ég lenti einu sinni mjög illa og þar með var endir bundinn á þennan feril minn. Þá fór ég að þróa sýninguna mína og stjórna nú vinsælasta sirkus Bandaríkjanna."
Jim er óspar á lýsingarorðin þegar hann lýsir því sem hann hefur upp á að bjóða. "Við færum ykkur fegurð, kynlíf og hefðbundin sirkusatriði. Sumt er vissulega sjokkerandi en þetta er fyrst og fremst grín. Af og til gerum við eitthvað sem gengur alveg fram af fólki en þetta smellur saman í eina heild og stórkostlega skemmtun. Þetta er yfirgengileg furðufuglasýning en við tökum okkur aldrei of hátíðlega. Þetta er groddalegur kabarett og það má aldrei gleyma því að þetta er grín. Áhorfendur hlæja mikið og við erum að draga fram fegurðina í því sem er kynþokkafult og nærgöngult. Sýningin er mjög hröð og það er eitthvað að gerast í öllum hornum á sama augnabliki. Þetta er kraftaverkasýning sem jafnast á við það magnaðasta úr Biblíunni og þó miðinn tryggi fólki sæti þá getið þið bókað það að þið sitjið spennt á brúninni frá upphafi til enda."
Það skemmtiegasta sem ég geri er að fylgjast með áhorfendum horfa á ósköpin, líta undan og loka augum. Það er það eina sme fólk getur gert þegar því ofbýður en þegar upp er staðið er þetta bara létt geggjað grín."
| 13:45 |