»  skrif  »  Sjálfstćđisbaráttan endalausa

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Sjálfstćđisbaráttan endalausa
Mánudagur, 27. júní 2005

Mér leiđast fáir dagar í dagatalinu jafnmikiđ og 17. júní. Hann er líklega sá ţriđji leiđinlegasti á eftir föstudeginum langa og sumardeginum fyrsta. Ţađ ömurlegasta viđ 17. júní er auđvitađ ađ ţá ryđst ein mesta smáborgaraţjóđ í heimi undir lúđrablćstri og fánaţyt í skrúđgöngur og fagnar sjálfstćđi sem fékkst í gegn međ ţrasi og tuđi. Dagurinn er notađur til ţess ađ berja sér á brjóst, hengja orđur á fólk fyrir mismikil og mismerk afrek og tala um hversu ćđislegt ţađ sé ađ vera Íslendingur og tala íslensku sem er ćđislegasta tunga í heimi, alveg meira en 1000 ára gömul og allt.

Ráđamenn ţusa svo eitthvađ um velmegun og hvađ hér sé frábćrt ađ búa á međan allt er á leiđinni lóđbeint til andskotans alla ađra daga ársins á međan ţjóđin étur amerískan og ítalskan fátćklingamat í öll mál og horfđir á amerískt rusl í sjónvarpinu og talar bjagađa og enskusletta hryggđarmynd af móđurmáli sínu.
17. júní og allt innantóma húllumhćiđ í kringum hann snertir ekki eina einustu taug innra međ mér. 19. júní er orđinn ađ miklu merkilegri degi en sá sautjándi og ég er í tilfinningalegu uppnámi eftir ađ hafa veriđ viđstaddur hátíđarfund á Ţingvöllum í gćr ţar sem ţess var minnst ađ 90 ár eru liđin frá ţví ađ konur fengu kosningarétt.
Jafnréttisbaráttan er enn í fullum gangi og er mikilvćgari en minningin um sjálfstćđisbaráttuna svokölluđu. Auđvitađ er margt glćsilegt í fortíđ okkar og sögu en ţess vegna er miklu nćr ađ minnast ţess sem er rangt, ljótt og setur svarta bletti á fortíđ
okkar, nútíđ og framtíđ. Í gćr var viđ Drekkingarhyl minnst 18 kvenna sem ţar var drekkt á sínum tíma fyrir ţađ eitt ađ storka feđraveldinu. Illvirkja og ranglćtis á ađ minnast til ţess ađ slíkt endurtaki sig ekki og svo lengi sem viđ, sem byggjum ţetta land, erum ekki öll jöfn er tómt mál ađ tala um sjálfstćđi á sautjánda júní.


| 13:51 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff