»  skrif  »  Húsið sem Guð gleymdi

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Húsið sem Guð gleymdi
Mánudagur, 18. júlí 2005

Frægasta draugahúsamynd síðustu áratuga er án efa The Shining eftir Stanley Kubrick en hún var byggð á samnefndri sögu hrollvekjumeistarans Stephen King. King sótti innblástur sinn til stallsystur sinnar, Shirley Jackson, en sígild draugasaga hennar, The Haunting of Hill House hefur verið kvikmynduð í tvígang. Robert Wise filmaði bókina með fínum árangri árið 1963 en Jan De Bont svo aftur með ömurlegum afleiðingum árið 1999.

Áður en Kubrick lét Jack Nicholson ganga af göflunum með öxi í yfirgefnu skíðahóteli í The Shining var The Amityville Horror draugahúsamynd númer eitt, tvö og þrjú og er enn lykilverk ásamt The Shining og The Haunting of Hill House. Myndin kom í bíó árið 1979 og sló strax í gegn og rakaði saman milljónum dollara í miðasölunni.

Alvöru hryllingur

The Amityville Horror fékk slagkraft sinn ekki síst frá þeirri staðreynd að hún byggði á raunverulegum atburðum en árið 1974 var heil fjölskylda myrt í svefni í gömlu húsi á Long Island. Ronald DeFeo yngri játaði það svo skömmu síðar að hafa banað foreldrum sínum og systkynum vegna þess að "raddir í húsinu" sögðu honum að gera það. Nokkru síðar fluttu ung hjón í húsið án þess að vita nokkuð um skelfilega fortíð þess. Illir andar hússins flæmdu þau út á um það bil tveimur vikum og þau máttu þakka fyrir að sleppa lifandi frá draumaheimili sínu.
Eiginmaðurinn virtist á þessum stutta tíma vera að missa vitið og ógnaði fjölskyldunni og prestur sem reyndi að kveða óværuna niður beið þess aldrei bætur að glíma við myrkraöflin innan veggja heimilisins.
The Amityville Horror naut mikilla vinsælda á Íslandi um það leyti sem mynböndin voru að festa sig í sessi og var þá leigð út í dönskum umbúðum og hét "Huset som Gud glemte".
James Brolin, sem er þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Hotel og í seinni tíð fyrir að vera eiginmaður Barböru Streisand lék húsbóndann sem myrti næstum fjölskyldu sína og Margot Kidder (Lois Lane í Superman) lék eiginkonuna. Rod Steiger setti hins vegar mestan svip á myndina í hlutverki prestins.

Gæti gerst í Hlíðunum

Framleiðendur nýju myndarinnar endurgerðu síðast myndina The Texas Chainsaw Massacre en sú tilraun þeirra tókst býsna vel og því vildu þeir eðlilega höggva tvisvar í sama knérunn. Þeir komust þó fljótt að því að það er lítið til af spennandi hryllingshandritum á sveimi um þessar mundir og þeir ákváðu því að halda endurvinnslunni áfram:
"Texas Chainsaw Massacre sýndi okkur að fólk virðist frekar vilja hryllingssögur sem byggja á raunverulegum atburðum," segir Brad Fuller, einn framleiðendanna, en hann ólst upp í grennd við Amityville húsið og man enn eftir gæsahúðinni sem hann fékk þegar hann ók fram hjá því á árum áður.
"Hryllingsmyndir sem eiga sér stoð í raunveruleikanum snerta fólk dýpra þar sem það trúir því að það sem það sér á tjaldinu geti komið fyrir það sjálft. Þess vegna fylgja þessar myndir fólki eftir löngu eftir að það yfirgefur bíósalinn," segir Fuller sem hikaði því ekki við að veðja á endurvinnslu Amityville.

Ný vínblanda á gömlum belg

Gagnrýnendur virðast almennt sammála um að Fuller og félagar megi vel við una og að nýja myndin sé í raun og veru betri en sú upprunalega. Söguþræðir myndanna eru þó vitaskuld býsna áþekkir en hér er þó kafað dýpra í atburðina og ýmsu gefinn gaumur sem var sleppt í myndinni frá 1979.
"Það erfiðasta við endurgerðir er að áhorfendur bera myndina strax saman við forverann og fólk hefur miklar meiningar um Amityville hryllinginn og hvað raunverulega gerðist og hvað ekki," segir Fuller. "Þegar við ákváðum að gera þessa mynd vorum við sammála um að best væri að þróa söguna með því að taka lykilatriðin úr gömlu myndinni og bæta þáttum úr málinu sem hafa ekki verið skoðaðir áður."


| 12:39 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff