Miðvikudagur, 27. júlí 2005
"Já. Það má alveg kalla okkur viðundur," segir sirkusstjórinn Jim Rose sem kom til landsins í fyrradag ásamt fimm furðufuglum en hópurinn mun leika kostulegar og á köflum brenglaðar listir sínar á Broadway á fimmtudaginn.
Það er óhætt að segja að sýning Jims sé ekki fyrir viðkvæma og aldurstakmark er því 18 ár en auk þess sem furðufyrirbærin hans setja músagildrur á tungur sínar, gleypa rakvélablöð og herðatré lyfta þau rafgeymi úr bíl með geirvörtum sínum og skjóta sér úr fallbyssu.
Kynjabarátta í reiptogi
Rose segir að þetta sé aðeins brot af því sem hann ætlar að bjóða upp á á Broadway og nefnir sérstaklega nýtt atriði sem verður frumreynt á Íslandi.
"Við ætlum að fá það á hreint í eitt skipti fyrir öll hvort kynið er sterkara með því að leiða saman karl og konu og láta þau fara í reiptog með kynfærum sínum. Þetta hefur aldrei verið gert áður og ég er mjög forvitinn að sjá hvernig þetta fer."
Fulltrúi kvenþjóðarinnar í þessu reiptogi er Amber Pie, 22 ára gömul klámmyndaleikkona, sem er ný í sirkusnum. Amber mun einnig lyfta lóðum með brjóstunum og leika listir sínar með svipu. Rose bætir því svo við að einn heppinn áhorfandi fái að eyða klukkustund baksviðs með Amber að sýningu lokinni. "Það má ræða bókmenntir við hana ef viðkomandi vill það en það er alveg inni í myndinni að láta hana lemja sig með svipunni eða ganga jafnvel enn lengra."
Óvinsæll hjá bókstafstrúarfólki
Þrátt fyrir að sirkusinn sé oft á tíðum yfirgengilegur segist Jim ekki finna fyrir miklu andstreymi. "Auðvitað heyrir maður alltaf einhverjar neikvæðar gagnrýnisraddir en það eru helst hægrisinnaðir, kristnir bókstafstrúarmenn sem eru á móti mér. Mér hefur verið stungið í steininn af og til og við vorum bönnuð á Nýja Sjálandi um tíma en það er allt í góðu núna."
Gagnrýnendur jafn ólíkra miðla og MTV og The Wall Street Journal hafa hlaðið sirkusinn lofi og Jim finnst ekkert sjálfsagðara enda segist hann bjóða upp á sýningu á heimsmælikvarða:
"Ég vek líka ekki jafn mikla hneykslan nú og áður en það þýðir ekki að sirkusinn hafi breyst heldur hefur heimurinn breyst. Það hefur líka haft sitt að segja að ég hef leikið í X-Files þáttum og við komum við sögu í Simpsons þætti þar sem Hómer var skotið úr fallbyssu. Þegar maður tengist því sem er efst á baugi í poppmenningunni öðlast maður ákveðið gjaldgengi og er tekinn í sátt."
Jim segir að þrátt fyrir það að við lifum á tímum þar sem allt er leyfilegt eigi hann erfiðar uppdráttar í heimalandinu eftir að George W. Bush varð forseti. "Það var vissulega auðveldara að komast upp með furðulega hluti í stjórnartíð Clintons. Ég er með háskólapróf í stjórnmálafræði og hef unnið fyrir CNN og það kom mér í bobba fyrir síðustu kosningar vegna þess að ég er alls ekki hrifinn af Bush."
Kjötkveðjuhátíð hins undarlega
Jim byrjaði með sirkusinn sinn árið 1991 en hafði áður unnið fyrir aðra og meðal annars stundað stökk yfir kúahóp á mótorhjóli en það var einmitt eftir slys í þeirri grein sem hann þurfti að hægja á sér og þá gerðist hann sirkusstjóri. "Ég gleypi enn rakvélablöð og sé um að keyra grínið á sviðinu áfram."
En fólki hlýtur að ofbjóða margt af þessu enda virðist sumt vera á mörkum þess sem hægt er að bjóða mannslíkamanum upp á? "Það er alltaf eitthvað að gerast alls staðar út um allan heim og þú hefur val. Þú getur kosið að horfa eða sleppt því. Við bjóðum upp á allt; stóra skammta af gríni, öfgakenndum atriðum og kynlífi. Sirkusinn minn er suðupottur, kjötkveðjuhátíð hins undarlega. Við breytum sviðinu í allsherjar salat. Það munu allir sjá eitthvað við sitt hæfi hjá okkur. Eitthvað fallegt, eitthvað kynæsandi og eitthvað fyndið. Það er svo misjafnt hvað fer fyrir brjóstið á fólki en þegar það kemur að einhverju sem þú þolir ekki skaltu líta undan og horfa á hina í áhorfendahópnum fylgjast með ósköpunum."
Malaði Ben Affleck í póker
Jim er með eigin sjónvarpsþátt í Bandaríkjunum, skrifar bækur og hefur ofan af fyrir sér með ýmsu öðru en sirkusnum. "Ég held að það standi til að sýna þáttinn minn í íslensku sjónvarpi. Tökuliðið mitt ætlar að mæta á Broadway og taka upp efni fyrir þáttinn þannig að þeir sem vilja komast í sjónvarp sem fer út um allan heim ættu ekki að láta sig vanta á sýninguna."
Jim er einnig öflugur pókerspilari og segist vera í hópi þeirra 40 bestu í Bandaríkjunum. "Ég er fjóra mánuði á ári að spila í Las Vegas. Ég er atvinnuspilari og spila til þess að vinna. Ég hef ágætis tekjur upp úr þessu og ég vann til dæmis 11.000 dollara af Ben Affleck ekki alls fyrir löngu. Hann er ekki góður tapari og svipurinn á honum þegar hann sá spilin mín var eins og hann hefði fundið fingur fljótandi í Kókinu sínu. Ég hef líka náð 6.000 dollurum af Spider-Man, honum Tobey Maguire."
Jim fór út að borða á Apótekinu á miðvikudagskvöld og skrautlegur hópurinn vakti að vonum athygli. Gengið ætlaði í Bláa lónið í gær en Jim ætlar svo að nota föstudaginn til að renna fyrir fisk og spila golf. "Ég verð að veiða silung áður en ég fer heim. Það er eitthvað sem ég geri í öllum löndum sem ég heimsæki," segir Jim sem hefur farið í níu heimsreisur með sirkusinn og segist vera hæst ánægður með að vera kominn til Íslands."
Brain Police hitar upp
Sirkus Jim Rose hefur hitað upp fyrir heimsþekktar hljómsveitir á borð við Korn, Nine Inch Nails og Marilyn Manson og hann er góðkunningi fjölmargra rokkhunda. Nú er hann hins vegar aðalnúmerið og því hefur verið gengið frá því að rokkhljómsveitin Brain Police hiti upp fyrir hann á Broadway.
Strákarnir í þeirri sveit kunna upp á hár að kynda undir lýðnum þannig að það er engin hætta á öðru en að mannskapurinn verði vel með á nótunum þegar Jim stígur svo á svið með Amber og öllum hinum furðufuglunum sínum sem ætla að bera mergjað salat á borð fyrir þá sem treysta sér í geggjunina.
| 10:47 |