»  skrif  »  Mitt rómantíska æði

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Mitt rómantíska æði
Mánudagur, 18. júlí 2005

Ég hef alltaf verið mjög rómantískur. Ekki rómantískur í þeim skilningi að ég sé alltaf að bera blóm í konur, borða kvöldmat við kertaljós og hlusta á Michael Bolton og Richard Clyderman. Mín hugmynd um rómantík er sprottin upp úr verkum rómantísku skáldanna. Það er svo sem ekkert óeðlilegt við það þar sem allir straumar og stefnur í bókmenntum, listum og afþreyingarmenningu eru ekkert annað en gárur á hinu rómantíska meginhafi.

Ég hef samt aldrei áttað mig alveg á því upp úr hverju mitt rómantíska æði er sprottið en einhverra hluta vegna var Byron lávarður orðinn minn maður áður en ég byrjaði að lesa verk hans og rómantíkin mín hefur alla tíð verið bölsýn og jafn þunglynd og Werther hinn ungi.
Ég hef ræktað rómantíkina mína innan borgarmarkanna, vorkennt mér heil ósköp og látið það eftir mér að hegða mér eins og sturlaður maður í guðlausum heimi. Firrtur í þeirri fullvissu að steynsteypa og malbik væri mitt rétta umhverfi og tilgagngur lífsins væri að deyja í frelsisstríði í fjarlægu landi.
Ég komst svo að því þegar ég stóð á ströndinni við Breiðuvík á Vestfjörðum nýlega og horfði á sólarlagið að rómantískur lífsskilningur minn hefur verið byggður á markvissum misskilningi. Öryggið sem ég taldi mig finna í póstnúmerunum 101, 107 og 105 sem ég hef reynt að halda mig innan í rúm þrjátíu ár er falskt og gengur þvert á mitt rómantíska eðli.
Ég heyrði nefnilega ekki heróp gömlu rómantíkeranna um afturhvarf til náttúrunnar fyrir umferðarniði og látunum í sjónvarpinu en veit nú að samband okkar við náttúruna er það sem heldur okkur heilum á geði.
Ég fann tilgang lífsins í fjörunni á Vestfjörðum og veit nú að það er ekki fyrr en maður er kominn út fyrir þjónustusvæði gsm-síma, fjarri skarkala borgarinnar, sem maður fær svigrúm til þess að upplifa og vera til. Þetta er ekki flóknara og tilgangnum er náð.


| 12:34 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff