»  skrif  »  Darwin og brennivínið

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Darwin og brennivínið
Miðvikudagur, 17. ágúst 2005

Ég er nýkominn heim frá Grænlandi þar sem ég gerði meðal annars úttekt á áfengisneyslu heimamanna, aðallega vegna þess að drykkjuskapur og eymdin sem honum fylgir er sérstakt áhugamál mitt.
Grænlendingar drekka mikið. Það er að segja þeir eru oft fullir þótt magnið sem þeir innbyrði sé ekkert stórkostlegt, sérstaklega ekki á íslenskan mælikvarða. Sigurður Ísmaður segist drekka fjóra til fimm kassa af bjór þegar hann dettur í'ða og það dugi ekki til þess að hann endi hálf rænulaus, baulandi og grenjandi. Grænlendingarnir þurfi hins vegar ekki meira en tvo bjóra og þá eru þeir úr sögunni.

Ísmaðurinn sagði mér að þótt Grænlendingar væru slæmir með víni þá væru þeir gott fólk og þrátt fyrir að innri maður fólks kæmi oft í ljós undir áhrifum þá ætti það ekki við um Grænlendingana. Þeim á maður ekki að reyna að kynnast á barnum.
Það er til ákveðin þróunarkenning um áfengisþol ólíkra kynstofna en hún byggir í grunninn á kenningu Darwins um náttúruvalið.
Um þrjú prósent gyðinga eru alkóhólistar en þeir hafa gutlað í víni allra þjóða lengst, í nokkur þúsund ár, og hafa því drukkið af sér flesta alkana. Alkóhólisminn virðist nefnilega vera þess eðlis að hann útrýmir sér þannig að þeir hæfustu til að drekka komast af. Norrænir menn eru búnir að kneyfa mjöðinn í rúm 1000 ár og hafa náð, á þeim tíma, að fækka alkóhólistum niður í 25% eða svo. Frumbyggjar Ameríku og Grænlendingar eru varla búnir að djúsa nema í nokkur hundruð ár og eiga því enn svo langt í land að alkóhólismi er almennur og eitthvað um eða yfir fimmtíu prósentin. Samkvæmt þessu er því tómt mál að tala um það að berjast af einhverju viti gegn áfengisbölinu á Grænlandi fyrr en í kringum árið 3000.
Eymdin og volæðið verður að fá að taka sinn toll í þúsund ár í viðbót og koma þeim ólánssömu sálum sem enn hafa ekki fengið áfengisúthald í arf frá forfeðrum sínum í hel.
Bakkus er harður húsbóndi en ljósið í myrkrinu er sú staðreynd að hann grefur undan sér þó hann grafi.


| 15:08 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff