»  skrif  »  Siglt undan oki siðmenningar með Ísmanninum

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Siglt undan oki siðmenningar með Ísmanninum
Mánudagur, 22. ágúst 2005

Ísmaðurinn Sigurður Pétursson var sendinefnd Hróksins á Grænlandi ómetanleg hjálparhella og hann er orðinn einn mikilvægasti tengiliður skákfélagsins við Grænlendingana. Þar fyrir utan hafði Ísmaðurinn ofan af fyrir Hróksliðinu með krassandi sögum af ævintýrum sínum auk þess sem hann reyndi að gera veiðimenn úr nokkrum landkröbbum þegar þeir stóðu upp frá skákborðunum.
Hann fór með Henrik Danielsen, danska stórmeistarann og skólastjóra Hróksins, og Namibíumeistarann Otto Nakapunda í ferð frá Tasiilaq til Kuummiit og það þarf ekki að fjölyrða um hversu mikið ævintýri það var fyrir skákfélaganna. Ekki síst Otto en allt sem fyrir augu hans bar á Grænlandi var framandi og nýtt.

Henrik sem er stóískur rólyndismaður lét undan áskorun Ísmannsins og reyndi að fella seli með byssu en hafði ekki árangur sem erfiði. Hann lét þess þó getið að þó hann hefði snúið tómhentur heim hefði hann fundið villidýrið brjótast um innra með sér þegar hann var kominn í veiðiham með vopnið í hönd.

Selur felldur í einu skoti

Guðmundur T. Haraldsson leikari var öllu fengsælli í leiðangri sínum með Sigurði. "Við sáum sel á einum jakanum og hann henti bara byssunni í mig og hrópaðu "dreptu hann", "dreptu hann"". Heppnin var með Guðmundi sem aldrei hefur gert flugu mein og honum tókst að fella selinn í sínu fyrsta skoti.
"Þá tók við mikill hamagangur þegar við lönduðum honum en það mátti litlu muna að við misstum hann í sjóinn. Siggi skar hann svo upp, fláði og gerði að honum á staðnum og lét mig taka bita úr hrárri lifrinni að veiðimanna sið."
Guðmundur segist hafa hikað augnablik en hafi svo hlýtt Ísmanninum og tekið vænan bita af blóðugri lifrinni sem var enn ylvolg. Hann matreiddi svo það sem eftir var af selnum sja´lfur um kvöldið og bar hann á borð fyrir félaga sína á hrísgrjónabeði. Sigurður sjálfur gefur ekki mikið fyrir svoleiðis tildur og segir best að henda kjötinu í pott og sjóða það upp úr sjó. Það spilli þó ekki fyrir ef maður getur kryddað kjötið með smá aromati.

Sannkallaður villimaður

Össur Skarphéðinsson alþingismaður var í hópi Hróksliðsins en hann setti Grænlandsmótið 2005 sem hófst í Tasiilaq á laugardaginn. Hann var, eins og aðrir, kátur að hitta Sigga Ísmann sem hann segir vera "villimann af guðs náð og sannarlega náttúrubarn eins og þau gerast best."
Það er óhætt að segja að þarna sé Ísmanninum rétt lýst en allt sem hann veiðir er matur og hann drepur ekki að gamni sínu. Hann var nýkominn úr ævintýralegum ísbjarnaveiðaleiðangri en eftir að hann hafði fellt tvö dýr missti hann skrúfuna undan bátnum og var strandaglópur á ísnum í átta daga og varð að gera sér gott úr kjöti af bráð sinni.
Össur komst ekki í siglingu með Sigurði að þessu sinni en Ísmaðurinn tók loforð þess efnis af þingmanninum að hann sækti sig heim í vetur. Þá ætlar Sigurður að senda sleðahunda eftir Össuri og fara með hann á ísbjarnaveiðar.

Ber beinin á jakanum

"Ég er búinn að vera hérna í átta ár," segir Sigurður sem var á sínum tíma fengsæll skipstjóri á Vestfjörðum. "Það kom nú eiginlega ekkert til. Ég fór hingað sem túristi og ílentist."
Sigurður mun hafa orðið fyrir vitrun þegar hann kom til Qaqortoq á suðurströndinni og þar hét hann ferðafélögum sínum því að hann myndi setjast að á Grænlandi. "Þetta er ekkert svipað Íslandi og er langtum betra en allt sem við þekkjum þar," segir Ísmaðurinn sem dvaldi einn vetur á Suður-Grænlandi áður en hann sigldi upp á austurströndina og settist að í Kuummiit þar sem hann býr núna.
Sigurður segist ekki geta hugsað sér að flytja aftur til Íslands enda sé ekkert þangað að sækja. "Ég drepst hér fyrir rest og reikna frekar með að það verði á einhverjum ísjakanum. Annars veit ég ekkert um það en Ísland bíður ekki upp á neitt nema stress. Þar eru allir alltaf að fara eitthvert eða koma einhvers staðar frá án þess að maður sjái beinlínis tilganginn. Bílaumferðin er yfirþyrmandi og annar hver maður blaðrar í farsíma. Mér leiðist þetta og get ekki hugsað mér að lenda aftur í þessu ati. Því er Grænland sá kostur sem ég hef valið og þar ætla ég að vera."

Sama um alla heimsins pressu

Ísmaðurinn var Hróksliðinu til halds og trausts í Tasiilaq og Kuummiit en að því verkefni loknu ætlar hann að leggja upp í náhvalsveiði. En hversu mikill fengur er í þeim skepnum?
"Við seljum tennurnar og eitthvað af spikinu og svo þurrkum við kjötið sem ég ét frekar mikið af. Þetta eru tímafrekar veiðar og maður býr oft í bátnum í mánuð eða meira."
Sigurður er þekktur ísbjarnabani en hann segir þó náhvalinn vera miklu meiri feng auk þess sem það sé miklu skemmtilegra að veiða hann en nokkra aðra skepnu. "Það er ágætt að eiga við ísbirnina líka en maður eltist síður við þá en ef þeir verða á vegi manns er sjálfsagt að fella þá. Það má fá ágætt verð fyrir feldinn og kjötið og svo ét ég líka töluvert af ísbjarnarkjötinu."
Ísmaðurinn komst í heimsfréttirnar árið 2003 eftir að Fréttablaðið greindi frá því að hann hefði drepið hákarl með berum höndum. "Það var einhver djöfulsins hákarl að reyna að éta frá mér náhval sem ég var að gera að í fjöruborðinu þannig að ég dró hann á land og drap hann í fjörunni. Þessi saga fór út um allan heim í alls konar útgáfum," segir Sigurður sem hefur þó engan áhuga á að ræða afrek sín við blaðamenn. "Mér er sama um alla helvítis heimsins pressu. Það eru alltaf einhverjir fréttamenn að eltast við mann en ég hef lítið viljað tala við þá."
Ísmaðurinn sýnir það svo með látbragði að honum er farið að leiðast þófið. "Er þetta ekki orðið gott. Getum við ekki haft þetta viðtal stutt og laggott. Þú skáldar svo bara í eyðurnar eins og þið gerið hvort eð er alltaf þessir blaðasnápar."


| 11:50 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff