»  skrif  »  Botnlanginn tryggður eftir á

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Botnlanginn tryggður eftir á
Sunnudagur, 11. september 2005

Ég er svo heilaþveginn af gegndarlausum þjóðrembingsáróðri um að íslenska vatnið sé tærast, íslensku konurnar fallegastar, íslensku karlarnir sterkastir og íslenska heilbrigðiskerfið sé það besta í heimi að ég taldi víst að dagar mínir væru taldir þegar ég veiktist skyndilega í útlöndum um daginn.

Hvað um það. Ég fékk skelfilega kviðverki í Grikklandi og eftir að hafa engst um á hótelinu í tvo daga gafst ég upp og kallaði til lækni. Sá vildi umsvifalaust senda mig á spítala, hringdi á sjúkrabíl og lét bruna með mig á einkarekinn spítala sem hann var á mála hjá. Þar var útlendingnum tekið með kostum og kynjum og eftir lauslega skoðun var mér tjáð að það yrði að skera úr mér botnlangann umsvifalaust.
Þar sem ég er ótryggður vildi ég fá að vita hvað slík aðgerð kostaði áður en ég færi undir hnífinn. Listaverðið á botnlangaskurði var 6.000 evrur eða eitthvað í kringum hálfa milljón. Heimildin á Vísakortinu mínu hefði ekki einu sinni dugað fyrir þessu þannig að ég lét flytja mig (enn sárkvalinn auðvitað) á ríkisspítala.
Þar var ég skoðaður af vægast sagt afslöppuðum læknum sen önguðu af áfengi og tóbaksreyk. Yfir mér sveimuðu moskítóflugurnar og ég átti mér enga ósk heitari en að vera kominn á hinn dauðhreinsaða, alíslenska Landspítala - háskólasjúkrahús. Ég hugsaði auðvitað til þess með hryllingi að þessir slompuðu gaurar, afkomendur Hippókratesar í beinan karlegg, ættu eftir að skera mig upp og gladdist því ósegjanlega þegar þeir tjáðu mér að ég væri með nýrnastein og það væri ekkert að botnlanganum mínum.
Nú er það svo að jafnvel traustustu björg geta molnað niður, orðið að sandi og skolast burt og ég geri mér því vonir um að steinninn sé úr sögunni. Ég hef svo enn tækifæri til að tryggja botnlangann minn og mun gera það áður en íslenska heilbrigðiskerfið verður einkavætt og hann verður skorinn úr mér upp á grín til að græða peninga.


| 13:11 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff