»  skrif  »  Haustpirringur

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Haustpirringur
Föstudagur, 09. september 2005

Þrátt fyrir það að mér hafi verið legið það á hálsi að vera þunglyndur, geðvondur og pirraður í þessum pistlum ætla ég að láta það eftir mér, eina ferðina enn, að vera leiðinlegur í dag.
Þetta eru fastir liðir hjá mér á haustin en þá verð ég eins og geitungur. Finn einhverja undarlega feigð læðast að mér og get ekki brugðist öðruvísi við en að sýna mínar verstu hliðar og helst stinga.

Nú er haustið ofboðslega fallegur tími og engin ástæða til annars en að brosa framan í kaldan vindinn og njóta sólarlagsins. Við geitungarnir getum það bara ekki vegna þess að við horfum bara á það neikvæða. Vitum að handan bleiks sólsetursins bíður myrkur, brunagaddur, haustútsölur, þingsetning og alls konar önnur geðveiki sem hverfur á sumrin.
Þegar mér og geitungunum líður illa langar okkur mest af öllu til þess að öðrum líði líka sem verst og þess vegna erum við viðskotaillir og látum allt fara í taugarnar á okkur. Rót vandans liggur samt ekki hjá fíflunum sem okkur langar að stinga heldur okkur sjálfum. Það eru gömul sannindi að eftir því sem fíflunum í kringum mann fjölgar þá er eithvað að hjá manni sjálfum. Það eru því eðlileg viðbrögð okkar fýlupúkanna að láta eiturstungum og fúkyrðum rigna yfir samferðarfólk okkar.
Geitungarnir eru þó bundnari af eðli sínu en ég þannig að þeir geta ekkert gert nema stungið einhvern og dottið svo niður dauðir. Þeir eru svolítið svipaðir reiða fréttabloggaranum á Suðurlandi sem dritaði ónotum og kláða yfir ríkisbubba og meint skítapakk. Nú er búið að taka broddinn úr rassinum á honum og eftir stendur fífl sem lét fíflin í kringum sig hafa sig að fífli.
Sjálfur ætla ég að byggja á reynslunni, búa mig undir veturinn með því að kaupa dúnsæng, klæða broddinn minn í bómull, og brosa við vetrinum og fíflunum því að fíflið það er ég.


| 20:06 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff