»  skrif  »  Hvítvín í pappaglasi

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Hvítvín í pappaglasi
Sunnudagur, 11. september 2005

Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega montinn af því að vera Íslendingur og jafnan verið manna fyrstur til að viðurkenna að við erum þjóð lúsera sem er að kafna úr mikilmennskubrjálæði og innistæðulausri þjóðrembu. Ég hef unnið töluvert með þessa skömm mína og hef náð undraverðum árangri á skömmum tíma.

Ég er orðinn alveg bærilega sáttur við að vera Íslendingur og hef reynt að horfa frekar á það sem er jákvætt og göfugt í fari þjóðarsálarinnar. Það koma að vísu stundum bakslög í þennan andlega bata minn og verst verða þau þegar ég ferðast til útlanda og horfi upp á landa mína sýna sínar verstu hliðar og sorglegustu þjóðareinkenni í útlendum flugstöðvum.
Þegar utanferðir Íslendinga voru stopular var áfengisneysla órjúfanlegur þáttur þeirra. Drykkjan hófst á Keflavíkurflugvelli og svo var djúsað í vélinni. Haldið áfram í útlandinu og drukkið alla ferðina, skvett í sig fyrir flugtak og staupað í loftinu á leiðinni heim til Íslands. Bjórinn forboðni var svo keyptur í Fríhöfninni og drykkjunni haldið áfram þegar heim var komið.
Vín- og drykkjumenning hefur aldrei þrifist á Íslandi en þó virðast Íslendingar alltaf vera að þokast aðeins nær siðuðum þjóðum í neyslu áfengis og ég hélt satt best að segja að við værum flest hætt að sukka í utanlandsflugi.
Miðað við upplifun mína í flugvellinum á Krít í síðustu viku hefur þó lítið breyst og ég var miður mín þegar ég horfði á landa mína skola niður skinkusamlokum með hvítvíni úr skrúfutappaflöskum í pappamálum. Það er enginn klassi yfir áfengisneyslu Íslendinga og meðferð þeirra á áfengi er aldrei dapurlegri en í sólarlandaferðum. Plebbisminn er alger.
Hvítvín drekkur maður ekki úr pappaglösum með samlokum. Spyrjiði bara James Bond, sem bar kennsl á svikara í From Russia With Love þegar vondi kallinn pantaði rauðvín með fiski. Svoleiðis gera bara villimenn og þess vegna tala ég ensku þegar ég er með Íslendingum í útlöndum.


| 13:12 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff