»  skrif  »  Ógeðslega skemmtilegir gaurar

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Ógeðslega skemmtilegir gaurar
Föstudagur, 02. desember 2005

Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum að bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Quentin Tarantino er staddur á landinu. Ég er ekki þannig að ég mígi á mig af geðshræringu og gleði í hvert sinn sem heimsfrægt hæfileikafólk sækir landið heim en ég tel samt komu Tarantinos til stórtíðinda. Þessi luralegi furðufugl lítur út eins og bensínafgreiðslumaður á frívakt og ber öll einkenni þess að hann sé ofvirkur með vélbyssukjaft og endalaust handapat. Gaurinn er skemmtilegur og bíómyndirnar hans frábærar.

Maðurinn er séní en lítur út fyrir að vera eitthvað allt annað. Ég gleymi því aldrei þegar ég gekk út úr Regnboganum eftir að hafa horft á Reservoir Dogs, frumraun Tarantinos á leikstjórastóli. Hann kom með ótrúlega ferskan gust inn í staðnað bíólandslagið og hristi heldur betur upp í glæpamyndabransanum.
Það var álíka hressandi að horfa á hryllingsmyndina Hostel, eftir Eli Roth, sem Tarantino framleiðir. Þetta er yfirgengilegasti og subbulegasti hryllingur sem ég hef lengi séð og það er óhætt að segja að Hostel sé ógeðslega skemmtileg. Með áherslu á ógeðslega. Það eru auðvitað ekki allir sammála mér og ég hef verið spurður ítrekað að því síðan á laugardaginn hvað sé að mér sem valdi því að pyntingar, blóðsúthellingar og limlestingar hressi mig svona við. Ég veit það ekki en tel samt fullvíst að ég sé heill á geðsmunum. Hryllingur er bara hressandi fyrir þá sem kunna að meta hann. Hinir eiga auðvitað bara að halda sig víðs fjarri og vera ekki að horfa.
Samkvæmt mínum mælikvörðum eru Tarantino og Eli Roth tignustu erlendu gestirnir sem heiðrað hafa landann með nærveru sinni. Afrek annarra falla algerlega í skuggann af því að annar þeirra hefur hækkað staðla í kvikmyndagerð almennt og hinn mun hefja hryllingsmyndina upp í áður óþekktar hæðir.


| 23:07 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff