»  skrif  »  Akva víte

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Akva víte
Mánudagur, 05. desember 2005

Fyrirsögnin bendir til þess að ég ætli eina ferðina enn að skrifa um áfengi, alkóhólisma og þunglyndi sem þessu sulli fylgir. Aldrei þessu vant og í sönnum jólaanda ætla ég hins vegar að hætta að vorkenna sjálfum mér og hugsa til þeirra sem virkilega þjást. Áfengið sem fyrir einhvern ótrúlegan misskilning hefur verið kallað "vatn lífsins" er ekki málið í dag, heldur bara vatn. Hreint og tært vatn.

Vatnið er undirstaða alls lífs og því mætti ætla að mannkynið allt hefði jafn greiðan aðgang að því. Þetta er vitaskuld ekki tilfellið og okkur hér á Íslandi hættir til að gleyma því að vatn er munaður. Við drekkum það beint úr krananum fyrirhafnarlaust, syndum í því í milljóna lítra tali í sundlaugum og notum svo mikið vatn til þess að þvo lúxuxbílana okkar að með þeim gusugangi mætti vökva ófáa akra í Afríku og halda lífinu í þúsundum barna þar í landi. Þeir sulla vatninu sem eiga það á Vesturlöndum á meðan fólk annars staðar á jörðinni er að skrælna.
Hjálparstarf kirkjunnar efnir til jólasöfnunar fyrir vatni í ár og hvetur landsmenn til að „skrúfa frá krananum“ með því að greiða gíróseðla sem sendir eru inn á hvert heimili. Hjálparstarf kirkjunnar er með brunna í Mósambík og verkefni í Malaví í að styrkja lífsafkomu fólks með áveitum. Upphæðin er 2.500 krónur en ekki þarf nema fimmtíu manns til að greiða fyrir einn brunn sem getur þjónað allt að þúsund manns og enst í áratugi. Heimsendu gíróseðlunum fylgir glitrandi vatnsdropi þannig að það má segja að fólki sé bókstaflega gefinn kostur á að kaupa vatn handa þeim sem virkilega þurfa á því að halda.
Ég er ekki hrifinn af kirkjunni en þetta er virðingarvert framtak og þótt andi jólanna sé löngu horfinn í botnlausa neysluhít kreditkortanna er okkur öllum hollt að staldra aðeins við og splæsa 2.500 kalli á einhverja aðra en okkur sjálf og þá sem næst okkur standa.


| 17:45 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff