»  skrif  »  Ekki meir, ekki meir!

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Ekki meir, ekki meir!
Þriðjudagur, 27. desember 2005

Það vita það allir sem vilja að í samfélagi okkar sem gengur fyrst og fremst fyrir peningum og umframeyðslu er hver næstur sjálfum sér enda færi þjóðfélagið ekki á hvolf í byrjun nóvember í brjáluðu innkaupaæði ef jólin snerust fyrst og fremst um náungakærleik og ánægjulegar samverustundir með sínum nánustu. Slíkt er nefnilega ókeypis og hefur ekkert að gera með hlaðin veisluborð og jólagjafir sem eru þyngdar sinnar virði í gulli.

Þessi tveggja mánaða geðveiki sem heltekur þjóðina hverfist öll um eina vesæla kvöldstund og einhvern veginn finnst mér nú, þegar upp er staðið á aðfangadagskvöld, geggjunin hafa verið full mikið af því góða. Langur aðdragandi með margra milljarða bruðli fyrir nokkurra klukkustunda dagskrá af áti og pakkaopnunum. Kom on? Aðfangadagskvöld er hinn fullkomni antíklæmax en flestir hafa þó geta keypt sér einhverja sálarró með því að gefa gjafir keyptar með sviðnu kreditkortinu. Síðan heldur lífið áfram í frumskóginum þar sem hver er næstur sjálfum sér.
Fólk hefur, í sönnum íslenskum jólaanda, mikið verið að barma sér yfir því hversu jólin eru stutt í ár. Auðvitað fáránlegt umkvörtunarefni. Því styttri sem jólin eru því betra og þau eru í raun aldrei lengri en þessar fáu blekkingarstundir sem settar eru á svið fyrir börnin á aðfangadagskvöld. “Lengri” jól hafa ekkert gott í för með sér en gefa fólki tækifæri til þess að halda fleiri jólaboð. Boð sem enginn kærir sig um að mæta í en allir drattast dregnir á asnaeyrum skyldurækni og ímyndaðs náungakærleika. Ef maður myndi vilja hitta þetta fólk yfirleitt þyrfti ekki fermingarveislu í dulargerfi jólaboðs til. Maður getur valið sér vini en ekki ættingja og þess vegna voru jólaboðin fundin upp sem kúgunartæki. Til hvers í ósköpunum er svo allt annar handleggur


| 21:52 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff