»  skrif  »  Ave Satani, eða þannig sko

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Ave Satani, eða þannig sko
Þriðjudagur, 14. febrúar 2006

Það hafa sjálfsagt runnið í það minnsta tvær grímur á einhverja sem horfðu á fréttaskýringaþáttinn Kompás á NFS og Stöð 2 í gær. Þar komu fram skuggamyndir af íslenskum djöfladýrkendum sem sögðust með brengluðum röddum vilja stofna trúfélag satanista á Íslandi.

Það er hins vegar ekkert að óttast í þessum efnum enda eru satanistar sjálfsagt meinlausasta sértrúalið sem sögur fara af. Djöfladýrkendur eru nefnilega upp til hópa vitleysingar sem halda að þeir verði voða töff með því að tengja sig Djöflinum. Mér stendur meiri stuggur af Krossinum og Veginum en satanistum enda fyrirsjáanlegt að trúfélag íslenskra satanista verði álíka beitt og skeinuhætt og Félag íslenskra þjóðernissinna.

Það sem gerir djöfladýrkendur svo fullkomlega misheppnaða er að þeir eru í raun kristnari en páfinn í Róm. Enginn hópur er jafn þétt innrammaður í kristna kenningu en einmitt þeir sem kenna sig við þann í neðra. Tilvist þeirra grundvallast á anhófi gegn kirkjunni og þess vegna gera þeir fátt annað en hvolfa krossum og blanda obláturnar sínar tíðablóði.

Grundavallarrit djöfladýrkendanna er Satansbiblían eftir Anton LaVey sem stjórnaði Satanskirkjunni í Chicago. Nú er þessi bók síður en svo galin enda grunnurinn í kenningum LaVey sá að Guð sé fjandlegur mannlegu eðli ólíkt Satan sem hann notar til að upphefja mannlega breyskleika og veikleika holdsins. Persónulega er ég mjög hlynntur því að mannlegt eðli og þá aðallega skepnan í okkur fái að blómstra með tilheyrandi hömlulausu kynlífi, áfengisneyslu og öðrum djöfulskap sem var LaVey að skapi. Okkur líður sjálfsagt illa innst inni undir oki kristinnar siðmenningar en djöfladýrkun er engin lausn enda var LaVey trúður þó það hafi verið vitglóra í skrifum hans, rétt eins og Biblían er uppspretta endalausra illvikrja þó boðskapur hennar sé góður.

Íslenskir satanistar verða væntanlega aldrei annað en lítil hjörð kjána sem eru jafnháðir kristinni kenningu og súrefni. Þeir sem vilja tilbiðja náttúruna, hið mannlega og jarðnána hljóta að snúa sér að okkar gömlu og heilbrigðu heinði frekar en halla sér að sauðum sem halda að það séu trúarbrögð að snúa krossi á hvolf.


| 19:57 |
komment

það sem þú ert að gera er að rugla saman Satanisma og Djöfladýrkun, það eru tveir mjög ólíkir hlutir.

Kirkja Satans, sem LaVey átti mestan hlut í að stofna hefur lítið sem ekkert að gera með Satanisma ef þú hefur kynnt þér hugtökin, kirkja Satans (þó að réttara væri að segja LaVey's) svipar vísindakirkjunni mjög af því leiti að boðskapurinn hljóðar nokkurn veginn svona; "Gefðu okkur fullt fullt af peningum og við upplýsum þig um leyndardóma lífsins"
Djöfladýrkun er hinsvegar bókstafleg trú á djöfulinn sem fallin engil og guð sem heylsteypta veru sem bjó allt til, nema að sjálfsögðu styðja Satan.

Also, heiðni og Satanismi eru mjög ólík trúarbrögð og öfugur kross hét upprunalega péturskross, og var tákn um Pétur sem bað um, og fékk, að vera krossfestur á öfugum kross, því honum fannst hann ekki vera þess verður að deyja líkt og Jesú.

Annars er ég sammála þér með það að Satanismi á íslandi muni aldrei verða neitt meira en lítil hjörð kjána, eins og þú svo skemmtilega orðaðir, enda eru flestallir íslendingar sem kalla sig satanista litlar 13 ára smágelgjur á uppreisnartímabili.
Hinir sem eru í raun og veru Satanistar gera sér alveg grein fyrir því að að reyna að skapa hóp í kringum satanisma er svipað og að stofna hóp í kringum misanthropiu, eða skipulöggð stjórnmál í kringum chaos (og nota ég nú tækifærið og beini þessu til íslenskra anarkista, sem svo margir, eru einmitt líka 13 ára smágelgjur á uppreisnatímabili)

Ekki vera fífl að taka mark á fólki sem vill stofna sataníska kirkju á íslandi en trúa skoðunum sínum ekki nóg til þess að tala undir nafni

Nr. 1 | TMS | 23.03.2008 | 21:21:39 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff