»  skrif  »  Að svíkja sjálfan sig fyrir kórónu

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Að svíkja sjálfan sig fyrir kórónu
Þriðjudagur, 28. mars 2006

Maður gæti freistast til þess að halda að þjóðkirkjan sé heitasti klúbburinn í dag þegar maður sér heilu opnurnar í Mogganum þéttriðnar nöfnum ungmenna sem eru að láta ferma sig í gríð og erg þessa dagana. Miðað við þetta árvissa vinsældastökk kirkjunnar mætti ætla að hún skipaði veigameiri sess í hjörtum íslenskra unglinga en Internetið, Gilzenegger og sjónvarpsstöðin Sirkus.

Þetta er auðvitað ekki svona einfalt og sjálfsagt tekur lítill hluti fermingarbarna við lífsins kórónu af mikilli trúarsannfæringu. Þyngst vega vitaskuld mútugreiðslurnar sem foreldrar og ættingjar inna af hendi svo þjóðkirkjan geti viðhaldið ofmetnum áhrifum sínum á samfélagið.
Allt auglýsingaskrumið og stússið í kringum ferminguna er fyrst og fremst diskódans í kringum gullkálf þó slíkir mjaðmahnykkir þyki ekki til eftirbreytni í Biblíunni sem er lögð til grundvallar þessari undarlegu manndómsvígslu óharðnaðra unglinga inn í neyslusamfélagið. Foreldrar og forráðamenn ættu að íhuga á hvaða siðferðisgrundvelli þeir standa þegar þeir kenna börnum sínum að það sé gott og gilt að gera sér upp trúarskoðanir og sannfæringu í skiptum fyrir veraldleg gæði. Það þarf til dæmis engan að undra að mannauðurinn gengisfalli hratt og græðgin hafi tekið öll völd í samfélaginu þegar sú kynslóð sem nú rís hæst í viðskiptalífinu fékk þetta veganesti út í lífið.
Sálfræðingurinn minn vill ekki útiloka að rót allra minna andlegu meina liggi í því að ég lét á sínum tíma fermast gegn eigin sannfæringu. Þetta voru fyrstu stóru svik mín við sjálfan mig og síðan þá hef ég lítið gert annað en bregðast sjálfum mér. Nú virðist þessi díll sem ég gerði fyrir eitthvert glingur og nokkra þúsundkalla vera óafturkræfur eins og sést best á áratugalangri baráttu Helga Hóseassonar þannig að ég sit uppi með mistök sem ég get ekki leiðrétt. Það er þó stórbót í máli að ég iðrast.


| 9:16 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff