Miðvikudagur, 22. mars 2006
Framsóknarflokkurinn á bágt og þó að útlitið hafi áður verið dökkt er staðan orðin svo slæm að drjúgur hluti kjósenda virðist eiga þá ósk heitasta að flokkurinn hverfi í næstu kosningum. Rót vandans liggur þó ekki dýpra en svo að enn má bjarga flokknum og blása lífi í líkið. Flokksmenn verða einfaldlega að láta af hvimleiðri hentistefnu og grímulausu sérhagsmunapoti.
Þetta gerist þó ekki af sjálfu sér. Það þarf að fá nýtt fólk inn. Ungt fólk. Þyngsti hnífurinn sem stendur í framsóknarbeljunni er nefnilega sá að úrvalið af ungu og efnilegu fólki í flokknum er nánast ekkert. Ákafir framapotarar hafa því séð sér leik á borði enda leiðin á toppinn í flokknum greið fyrir þá sem vilja komast með hraði í þá aðstöðu að geta skarað eld að eigin köku. Flokkurinn er orðinn færiband sem flytur meðalmenni miklu lengra en verðleikar þeirra gefa tilefni til. Þar sem útþynnt framsóknarblóð rennur um æðar mínar hef ég ákveðið að bjarga flokknum með því hreinlega að taka hann yfir.
Einu sinni unnum við saman á Fréttablaðinu ég, Guðmundur Steingrímsson Hermannssonar og Kristján Hjálmarsson Árnasonar. Við stofnuðum óformlegan sjálfshjálparhóp „skemmdra framsóknarbarna“ enda höfum við allir fengið að kenna á ættartengslum okkar við flokkinn. Ég hef orðið fyrir einelti vegna þessa, verið illa séður tengdasonur, þótt ónýtur til undaneldis og mátt þola háðsglósur og fordóma.
Geti einhverjir bjargað flokknum frá bráðum bana erum það við þremmenningarnir. Guðmundur er auðvitað réttborinn forsætisráðherra og við munum því ekki eyða tíma í að þrasa um hver eigi að vera aðal. Við værum líka ekki að gera þetta fyrir okkur og myndum einbeita okkur að því að endurvekja ungmennafélagsandann og virkja flokksmenn til góðra verka í þágu lands og þjóðar.
Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst og við verðum klárir þegar maddaman brýtur odd af oflæti sínu og hrópar á hjálp.
| 9:13 |