»  skrif  »  Bloggidíblogg

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Bloggidíblogg
Þriðjudagur, 09. maí 2006

Ég ætla að byrja að blogga vegna þess að mér finnst líf mitt svo spennandi, innihaldsríkt og margbreytilegt að það hljóti að eiga erindi við fólk sem ég þekki ekki neitt og mun aldrei hitta.
Internetið er fullt af bloggum alls konar fólks sem lifir svo undursamlegu lífi að það er hrein unun að lesa um hversdagsleg ævintýri þess. Dagarnir eru sko ekki heldur allir eins hjá mér og ég kann vel að fanga fegurð tilverunnar og mun örugglega auðga líf annarra með skrifum mínum. Þessu munu þeir kynnast sem lesa bloggið mitt en fyrsta færslan er svona:

„Ég vaknaði í óvenjugóðu skapi við fuglasöng sem þagnaði skyndilega þegar köttur nágrannans drap morgunsöngvarann. Þá varð ég soldið leiður en hellti mér bara upp á kaffi. Dagurinn versnaði þegar ég fattaði að ég átti ekki fyrir sígarettum og mamma vildi ekki lána mér 500 kall. Ég er að reyna að þyngja mig en ekkert gengur. Ég kemst bara ekki upp fyrir 57 kílóin sama hvað ég ét. Það er samt svo merkilegt að ég hef orðið svo miklu næmari fyrir hinum hárfínu blæbrigðum tilverunnar eftir að ég fór að léttast. Þess vegna er ég farinn að hanga mikið á Mokka. Stari ofan í svart kaffið á milli þess sem ég tala við fræg skáld. Ég held að ég sé að verða skáld sjálfur. Jafnvel betri en sumir þeirra sem ég tala við. Það birtist pistill eftir mig í Fréttablaðinu í dag og annar er væntanlegur fljótlega. Mér finnst gaman að sjá nafnið mitt í blaðinu og les alltaf það sem ég skrifa. Ég er líka búinn að vinna mikið í ljóðinu mínu og er að verða sáttur við það. Vonandi vill Silja birta það í TMM. Fór að sækja jakkafötin mín í fatahreinsun í gær og varð heldur betur hissa þegar þvældur hvítur sportsokkur með rauðum röndum datt úr annarri skálminni. Fannst hann tala til mín en náði ekki skilaboðunum. Já, lífið er skrýtið og uppátæki Guðs oft undarleg. Jæja, farinn út að skokka og sjá hvort ég hitti ekki einhvern frægan sem ég get kastað kveðju á.“


| 10:59 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff