»  skrif  »  Lífð er endalaus ráðgáta

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Lífð er endalaus ráðgáta
Miðvikudagur, 17. maí 2006

Kvikmyndahátíðin í Cannes hófst í gær með frumsýningu The Da Vinci Code. Aðstandendur myndarinnar fylgdu myndinni vitaskuld úr hlaði og héldu blaðamannafund í hátíðarhöllinni í gær með leikstjórann Ron Howard og aðalstjörnuna Tom Hanks í broddi fylkingar. Þórarinn Þórarinsson sat fundinn þar sem Hanks sló á létta strengi og Ian McKellen stal senunni.

Þeir voru glaðhlakkalegir félagarnir Ron Howard og Tom Hanks (Robert Langdon) þegar þeir gengu í salinn en með þeim í för voru Frakkarnir Jean Reno (Bezu Fache) og Audrey Tautou (Sophie Neveu) og bresku úrvalsleikararnir Paul Bettany (Silas), Ian McKellen (Leigh Teabing) og Alfred Molina (Aringarosa biskup). Þetta ágæta fólk fékk þó ekki mikið til málanna að leggja þar athyglin var öll á Howard og Hanks.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um Da Vinci lykilinn enda hefur söguþráður hennar verið milli tannanna á fólki um árabil og skáldsagan sem hún byggir á hefur selst í 40 milljón eintökum út um allan heim. Eftirvæntingin eftir kvikmyndinni er því að vonum mikil og rétt eins og enginn þykir maður með mönnum nema að hafa lesið bókina munu fáir komast hjá því að sjá myndina. Þrátt fyrir útbreiðslu og vinsældir skáldsögunnar hvíldi mikil leynd yfir kvikmyndinni allt fram að frumsýningunni í gær. Howard sagði að þessi ákvörðun hefði ekki síst verið tekin þar sem hann vildi að þeir sem ekki hafa lesið bókina geti notið myndarinnar og spennunnar í botn.

Spurningarnar sem Tom Hanks fékk voru margar hverjar undarlegar en leikarinn svaraði þeim öllum og gerði óspart að gamni sínu. Einhverjum blaðamanninum datt til dæmis í hug að bera leikarann saman við sjálfan Leonardo Da Vinci og benti á að sá síðarnefndi hefði gert sitt meistarastykki 51 árs og spurði í framhaldinu hvort Hanks teldi sig enn eiga sitt meistaraverk ógert. "Ja, ég hef þá eitt ár til að bæta úr því. Ég eignaðist nýlega réttinn á Scooby Doo 3 og takist mér að gera þá mynd fyrir árslok þá er þetta komið."


Syndlausar en hugsandi verur

Eiginkona Hanks er kaþólsk og hann var inntur eftir því hvort ákvörðun hans um að leika í The Da Vinci Code hafi valdið þeim óþægindum og hvort hann hafi fundið fyrir þrýstinga fólks í söfnuðinum heima. "Nei alls ekki. Samkvæmt þeim trúarskilningi sem við hjónin höfum og hún ólst upp við þá hefur syndinni verið létt af okkur en ekki hæfileikanum til að hugsa. Ég tel að þessi mynd, eins og svo margar aðrar, geti gefið fólki tilefni til þess að skoða hug sinn og afstöðu þess til lífsins og alheimsins. Þetta er ekki heimildarmynd og ég held að engin kvikmynd, sérstaklega ekki ef hún er hugsuð sem afþreying, sé líkleg til þess að rugla fólk í ríminu."

Ron Howard tók þráðinn upp þarna og sagði söguna vera þess eðlis að myndin muni koma illa við einhverja. "Það er ekki spurning en mitt ráð til þeirra er einfaldlega þetta: Ekki fara á myndina ef þið teljið ykkur stafa ógn af henni. Bíðið aðeins og ræðið svo við aðra sem hafa séð myndina og takið svo yfirvegaða ákvörðun. Myndin á að vera afþreying og hún er ekki guðfræði. Hún vekur samt upp spurningar og ætti að fá fólk til að ræða þessi mál og þegar upp er staðið held ég að það sé alltaf jákvætt ef myndir hafa slík áhrif."

Fundurinn hverfðist að mestu um mótmæli kaþólikka gegn myndinni og og þau óljósu mörk sem virðast vera í hugum fólks um hvað sé skáldskapur og hvað sögulegar staðreyndir þegar Da Vinci lykillinn er annars vegar. Howards og Hanks voru því beðnir um að svara því hvort þeir sjálfir tryðu því að Jesús Kristur hafi átt eiginkonu. "Ég var ekki á staðnum," svaraði Hanks að bragði, uppskar hlátur og þar með var málið afgreitt af hans hálfu. "Hver og einn verður að komast að sinni niðurstöðu og ég ætla ekki að deila minni með ykkur. Áhorfandinn verður að upplifa myndina, hugsa um hana og tala um hana. Áhorfendur eru gáfaðir og mér finnst þeir oft vanmetnir vegna þess að þeir geta mjög auðveldlega komist að sjálfstæðri niðurstöðu. Eitt af því sem bókin undirstrikar og ég vona að myndin geri líka er að lífið er endalaus ráðgáta. Hugur okkar er eitt það mikilvægasta og merkilegasta sem okkur hefur verið gefið ásamt forvitni og þránni til þess að rannsaka og skilja hluti. Ég held að það stríði gegn náttúrunni að reyna að halda aftur af huganum og að mínu mati eru allir hlutir sem kynda undir samræður og eflir ímyndiuraraflið sé af hinu góða."

Jesús var ekki hommi

Ian McKellen, Alfred Molina og Paul Bettany sátu lengst af þöglir en fengu að láta ljós sín skína þegar þeir voru beðnir að lýsa því hvernig þessir árekstrar staðreynda og skáldskapar blasa við þeim. Molina reið á vaðið og sagði þá Howard og Hanks í raun vera búna að svara þessu. "Allir sem hafa keypt bókina gerðu það í skáldsagnadeildinni og allir sem sjá myndina munu horfa á skáldskap en ef myndin fær fólk til að kafa dýpra ofan í viðfangsefni myndarinnar þá er það hið besta mál. Ég held líka að allar þessar deilur og mótmæli séu stormur í vatnsglasi, eitthvað sem fjölmiðlar hafa magnað upp til þess að búa til safaríkar og spennandi fréttir. Það hefur eiginlega ekkert orðið úr þessu og fátt sem hægt er að festa hendur á. Einhverjar yfirlýsingar hafa verið gefnar út en það sem stendur eftir er að einhverjum mun mögulega ekki líka myndin. Lífið er bara þannig að það er slökkvari á öllu og hver og einn getur ákveðið það að fara ekki og sjá þessa mynd."

Ian McKellen var öllu beittari og vakti mikla kátínu þegar hann notaði tækifærið og skaut á kaþólsku kirkjuna fyrir viðhorf hennar til samkynhneigðra en Kellen er sjálfur hommi og hikar ekki við að beita sér fyrir auknum réttindum samkynhneigðra. "Þegar ég las bókina trúði ég henni alveg og kann Dan Brown bestu þakkir fyrir að rugla svona í kollinum á mér. Ég vil líka endilega trúa því að Jesús hafi verið mannlegur. Ég veit að kaþólska kirkjan hefur átt í vandræðum með samkyneigð og mér fannst þetta svo frábært þar sem þetta staðfestir að Jesús hafi ekki verið hommi." Kellen dró svo þá ályktun að æsingurinn í kringum myndina tengdist fyrst og fremst snobbi. "Þegar bókin kom út var enginn með þessi læti. Er það vegna þess að lesendum er treyst til þess að hugsa en fólk sem fer í bíó er heilalaust lið sem þarnast verndar? Mér finnst vera svolítið snobb í gangi í kringum þetta og ég trúi því að bíógestir séu alveg jafn gáfaðir og lesendur og geti því vel gert upp hug sinn og á meðan þeir gera það geta þeir skemmt sér konunglega."

Paul Bettany var í takt við landa sína tvo en hann hefur aldrei efast um að Da Vinci lykillinn sé skáldskapur. "Þegar Ron hringdi í mig og bað mig um að vera í myndinni notaði hann orðin "munkur", "morðingi" og "Da Vinci Code" og ég sagði strax "já". Þá spurði hann hvort ég hefði lesið bókina sagði ég "já, auðvitað" þó ég hefði ekki gert það. Ég rauk svo til og náði mér í bókina, ekki í guðfræðideildinni heldur skálskapardeildinni, og las hana í tveimur lotum. Þetta er þannig bók að maður flettir henni hratt og getur ekki hætt. Í framhaldinu las ég ýmis guðfræðirit á meðan ég undirbjó mig fyrir hlutverkið og ég get sagt ykkur það að þau fá mann ekki til að fletta hratt. Þannig að það ætti að vera öllum ljóst að þetta er skáldskapur."

Spáir ekki í vinsældum

Gagnrýnendum og blaðamönnum gafst kostur á að sjá The Da Vinci Code í Cannes á þriðjudag og miðvikudag og fyrstu dómar eru blendnir og Howard hefur meðal annars verið sakaður um að drepa niður það líf sem var í bókinni. Howard segist þó ekki hafa áhyggjur af því hvernig myndini mun reiða af í miðasölunni og kippir sér ekki upp við dómana. "Ég hef ekki lesið neina dóma ennþá en sjálfsagt eru einhver lýsingarorð í einhverjum þeirra sem maður vildi skipta út. Ég hef gert margar vinsælar myndir og er löngu hættur að reyna að spá í það fyrirfram hvernig myndirnar mínar eiga eftir að ganga. Ég vel verkefni vegna þess að efniviðurinn heillar mig og ég get hugsað mér að eyða einu og hálfu til tveimur árum í að segja þá sögu. Bókin er áberandi og margir hafa áhuga á henni þannig að ég vona svo sannarlega að hún muni ganga vel en ég vel mér ekki myndir með hliðsjón af því."


| 16:39 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff