»  skrif  »  Nafnlaust andlit sem allir þekkja

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Nafnlaust andlit sem allir þekkja
Sunnudagur, 14. maí 2006

Bandaríski leikarinn John C. Reilly kom til landsins í gær í tilefni af Listahátíð í Reykjavík. Reilly er alræmdur senuþjófur og hefur sýnt stórleik í kvikmyndum fjölda virtra leikstjóra en þrátt fyrir það er nafn hans ekki mjög þekkt. Andlitið þekkja hins vegar flestir. Þórarinn Þórarinsson ræddi við Reilly um ferilinn, frægðina og Ísland.

„Það er alveg rétt. Fjöldi fólks veit ekkert hvað ég heiti og áttar sig ekki á að ég er leikari. Það er gott og þannig vil ég hafa það,“ segir Reilly. „Þetta hefur samt aðeins verið að breytast enda hef ég leikið í fjörutíu kvikmyndum þannig að fólk er aðeins farið að kannast við nafnið. Ég tel það vera mjög mikilvægt fyrir leikara að geta komið áhorfendum á óvart. Þegar fólk þekkir nafn þitt og telur sig geta skilgreint þig og býst fyrirfram við einhverju frá þér er óhjákvæmilega erfiðara að koma að því úr óvæntri átt. Ég vona svo sannarlega að þetta svigrúm mitt sé ekki að hverfa.“

Útvarpsþáttur lifnar við á tjaldinu

Reilly er hingað kominn til þess að vera viðstaddur sérstaka forsýningu á nýjustu mynd Roberts Altman, A Prairie Home Companion, í Háskólabíói á sunnu­dagskvöld. Altman leikur sér í myndinni með útvarpsþáttinn A Prairie Home Companion sem hefur notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum frá árinu 1974.
Mynd Altmans er stjörnum prýdd að vanda enda sækjast leikarar eftir að fá að vinna með gamla manninum og auk Reillys fara Meryl Streep, Woody Harrelson, Tommy Lee Jones, Kevin Kline, Lindsay Lohan, Virgina Madsen og Robin Williams með hlutverk í myndinni. Reilly mun kynna myndina á sýningunni á sunnudaginn en hann er hæstánægður með hvernig tókst til.
„Við forsýndum hana um daginn og hún sló alveg í gegn og það besta var að eftir sýninguna sagði fólk að þetta hefði verið góður þáttur hjá okkur. Áhorfendum fannst þeir hafa verið að horfa á útvarpsþáttinn en ekki bíómynd. Það verður ekki öllu betra,“ segir Reilly.

Frábært að vinna með Altman

Reilly sparar ekki lofið þegar talið berst að Robert Altman. „Hann er frábær. Þegar ég var að leika í Streetcar named Desire á Broadway í fyrra hugsaði ég með mér að það væri tímabært að leika aftur í bíómynd og ég gerði lista yfir leikstjóra sem mig langaði til að vinna með. Altman var efstur á listanum og þremur dögum eftir að ég skrifaði listann hringdi hann í mig og bað mig um að vera í A Prarie Home Companion. Þetta var mjög magnað augnablik.“
Leikstjórnarstíll Altmans höfðar vel til Reillys sem leið afskaplega vel á tökustað. „Mér fannst ég ekki geta gert mistök alveg sama á hverju gekk vegna þess að Robert er alltaf að leita að mistökum. Hann er að sækjast eftir því óvænta og leggur mikið upp úr spuna. Hann leyfði okkur að fara langt út fyrir handritið þannig að mér fannst mjög gott að vinna undir hans stjórn.“

Gagnnjósnari og senuþjófur

Reilly var tilnefndur til Óskarsverðlauna sem besti leikarinn í aukahlutverki árið 2003 fyrir hlutverk sitt í dans- og söngvamyndinni Chicago og sýndi eftirminnileg tilþrif í myndum Pauls Thomas Anderson, Boogie Nights og Magnolia, en það má segja að með þeim myndum hafi hann fest sig í sessi sem skæður senuþjófur. Reilly og Anderson eru nánir vinir og leikarinn telur víst að þeir eigi eftir að vinna saman aftur.
Auk Altmans og P.T. Andersons hefur Reilly leikið undir stjórn ekki ómerkari kvikmyndahöfunda en Woody Allen, Martins Scorsese, Walters Salles, Terrence Malick og Brians De Palma. Hann segir það vissulega sérstakt að hafa kynnst þessum meisturum.
„Þetta eru allt ólíkir menn og þeir eyða ekki miklum tíma í bíó að horfa á verk annara ef þeir gera það yfirleitt. Ég er því svolítið eins og gagnnjósnari vegna þess að ég hef tekið eitthvað frá þeim öllum sem hinir vita ekkert um. Þegar ég kem á tökustað hjá Altman er ég með veganesti frá öllum þessum frábæru leikstjórum sem ég hef unnið með. Þetta er skemmtilegt þar sem ég þarf að endurstilla mig í hvert skipti og aðlagast nýjum stíl en það er hluti af starfi leikarans að laga sig að sýn leikstjórans.“

Þau hlutverk sem Reilly hefur tekið að sér á undanförnum árum virðast flest sérstaklega sniðin fyrir hann enda vandar hann valið vel. „Ég þekki leikara sem taka öllum tilboðum sem þeim berast. Ég geri það pottþétt ekki. Ég er varkár í þessum efnum og forðast það að endurtaka mig. Það er svo mikil vinna að gera bíómynd þannig að maður vill auðvitað hafa trú á því sem maður er að gera.“

Alsæll á Íslandi

Reilly kom til landsins í gær ásamt eiginkonu sinni Alison Dickey kvikmyndaframleiðanda. Leikarinn er vægast sagt uppveðraður yfir Íslandsheimsókninni enda hefur hann heyrt ýmislegt um land og þjóð. „Ég ætla að nota tímann vel. Ég hef ekki enn heyrt neitt slæmt um Ísland fyrir utan það að það geti orðið svolítið kalt. Ég hef líka séð fullt af góðum myndum frá Íslandi en af þeim hafði Nói albínói mest áhrif á mig. Frábær mynd.“

Reilly reynir að hafa dagskrá sína hér á landi eins óskipulagða og hægt er enda vill hann helst nota tímann til að skoða sig um á eigin forsendum. „Ég er mjög spenntur fyrir þessari heimsókn. Ég hef heyrt svo margt um Ísland svo lengi og vinir mínir dauðöfunda mig af því að vera kominn hingað, sérstaklega Paul Thomas Anderson. Honum hefur verið boðið hingað en þá komst hann ekki og hann sagði við mig um daginn að hann tryði því ekki að ég væri að fara til Íslands á undan honum.“


| 15:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff