»  skrif  »  Staðan breytist með hverjum leik

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Staðan breytist með hverjum leik
Þriðjudagur, 30. maí 2006

Ég kann ekki að tefla og tel víst að það hafi háð mér umtalsvert á lífsleiðinni. Það veit nefnilega ekki á gott að kunna ekki mannganginn og djöflast stefnulaust yfir borðið og fella peð, biskupa og drottningar án þess að hugsa fram í tímann og reyna að sjá afleiðingar gjörða sinna fyrir.

Þessi hegðun og sú meinloka að geta ekki farið eftir settum reglum er vitaskuld ávísun á tap og maður endar fyrr eða síðar innikróaður úti í horni þar sem allar bjargir eru bannaðar. Mér er fyrirmunað að læra skák. Hún er of rökrétt til þess að ég skilji hana og mér er eðlislægt að vera á gráu svæði frekar en standa föstum fótum á annað hvort svörtum eða hvítum reitum. Kynni mín af skákmeisturum hafa þó fært mér heim sanninn um að lífið allt rúmast á 64 reitum.

Stórmeistarinn Hinrik Danielsen segir til dæmis að skákin snúist öll um „time, space and power“, eða tíma, pláss og aflsmuni. Þetta er nákvæmlega eins í lífinu og þá spillir heldur ekki fyrir, í báðum tilfellum, að vera með stáltaugar. Þetta er fjórði frumþátturinn þar sem það segir sig sjálft að sá sem fer á taugum gefur eftir pláss, missir mátt og fellur á tíma.

Hinn sókndjarfi meistari Ivan Sokolov á svo besta skákfrasann sem ég hef heyrt hingað til en þegar svo einkennilega vill til að hann stendur frammi fyrir tapi lyftir hann höndum og segir „nothing to be done“. Glötuð staða, ekkert hægt að gera. Þessi viska ætti að leynast í páskaeggjum enda ber hún vott um æðruleysi og raunsæi. Það er líka vissulega huggun harmi gegn að meistarar verða stundum að játa sig sigraða enda er lífið svo flókið að jafnvel þeir sem sjá marga leiki fram í tímann geta misstigið sig. Staðan breytist með hverjum leik og allt er þetta tilviljunum háð.

Það sem er best við skákina og lífið er svo það að þegar maður stendur frammi fyrir því að geta ekkert gert fellir maður bara kónginn, stillir mönnunum upp aftur og byrjar upp á nýtt.


| 10:36 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff