„Ég hef aldrei verið betur á mig komin, hvorki andlega né líkamlega,“ segir Berry, sem hefur marga fjöruna sopið, ekki síst í ástarmálum, en hún telur sig nú loksins hafa fundið hinn eina rétta. „Ég er mjög hamingjusöm og það var tími til kominn.“
Fórnarlamb lúmskra fordóma
Leiðin hefur legið upp á við jafnt og þétt hjá Berry allt frá því hún lék í Spike Lee-myndinni Jungle Fever og hasarmyndinni The Last Boy Scout á móti Bruce Willis árið 1991.
The Last Stand er þriðja X-Men-myndin hennar og hún átti góða innkomu sem hörkutólið Jinx í James Bond-myndinni Die Another Day. Inni á milli stórra hasarmynda lék hún svo í Monster´s Ball, sem skilaði henni Óskarsverðlaunum sem besta leikkonan í aðalhlutverki árið 2001.
„Ég hef þurft að berjast fyrir nánast hverju einasta hlutverki,“ segir Berry og er nokkuð niðri fyrir. „Í alvöru talað. Öll þau hlutverk sem mig hefur virkilega langað til að leika hafa kostað mig átök. Ég veit ekki hvað veldur þessu og án þess að ég sé að kvarta þá lifum við í heimi kynþáttafordóma og í sannleika sagt verður fólk eins og ég fyrir barðinu á fordómum á sumum sviðum. Ég er ekki að segja að Hollywood sé fordómafull en fordómarnir eru svo lúmskir að fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir því að þeir stjórna ákvörðunum þess.“
Hætt að reyna að þóknast öðrum
Berry segist, eins og fleiri leikarar í The Last Stand, hafa heillast af samfélagsgagnrýninni sem fléttuð er inn í handrit myndarinnar. „Myndin fjallar beinlínis um kynþáttafordóma og ég tengdist þessu efni sterkum böndum. Fyrst og fremst sem kona og svo einnig sem lituð kona,“ segir Berry, sem hefur bæði mátt gjalda fyrir kyn sitt og hörundslit á leið sinni á toppinn.
„Það er mikilvægt að við hugsum um þessi mál. Ég hugsaði um það oft á dag, á meðan við vorum að gera myndina, hvað myndi gerast ef yfirvöld í Bandaríkjunum myndu þvinga fólk til að taka mótefni sem breytti dökum hörundslit fólks í hvítan og ég þyrfti að taka þetta inn til þess að halda lífi eða fá að búa áfram í landinu mínu. Það væri hræðilegt og þessar hugsanir vöktu upp sterkar tilfinningar innra með mér. Allt mitt líf hef ég barist fyrir því að vera tekin í sátt og verða samþykkt. Það var ekki fyrr en ég komst á fertugsaldurinn sem ég áttaði mig á að það skiptir ekki máli hvað öðrum finnst. Ég gerði mér þá loks grein fyrir því að fólk gæti bara tekið mér eins og ég er og ég þyrfti ekki að breyta mér til að þóknast öðrum.“
Er enn að berjast
Þrátt fyrir Óskarsverðlaunin og byr sem leikkonan hefur fengið undir báða vængi þurfti hún að hafa mikið fyrir því að landa aðalhlutverkinu í næstu mynd danska leikstjórans Susanne Bier. Myndin heitir Things We Lost in the Fire og allt útlit er fyrir að Benicio Del Toro muni leika á móti Berry í henni.
„Handritið barst mér á meðan ég var að leika í X-Men. Það höfðaði svo sterkt til mín að ég stökk upp, hringdi í umboðsmanninn minn og hrópaði á hann að ég yrði að fá þetta hlutverk. Þetta var svipuð tilfinning og þegar ég las Monster´s Ball.“
Mynd Bier fjallar um ekkju, tveggja barna móður, sem tekur vin látins eiginmanns inn á heimili sitt. Sá er í miklum vanda en eftir að honum tekst að snúa lífi sínu við hjálpar hann fjölskyldunni að horfast í augu við og takast á við fráfall fjölskylduföðurins.
Tókst að heilla Susanne Bier
„Ég vissi að þetta yrði lítil mynd og ég myndi líklega ekki fá mikinn pening fyrir hlutverkið en mér var alveg sama. Ég bara varð að gera hana. Umboðsmaðurinn sagði mér að ég myndi líklega ekki hreppa hlutverkið þar sem verið væri að skoða Reese Witherspoon og allar aðrar leikkonur en mig.“
Berry var þó ekki á þeim buxunum að gefast upp enda hefur hún Bier í hávegum. „Ég ákvað samt að berjast fyrir þessu og var svo heppin að fá hana til að hitta mig í New York í síðasta mánuði. Ég vissi að ég hefði eina klukkustund til þess að heilaþvo hana og gera henni grein fyrir því hversu mikils ég mæti verk hennar og hefði ríka þörf fyrir að leika í þessari mynd. Ég hafði séð myndina hennar Brothers (Brødre) og hún heillaði mig gjörsamlega upp úr skónum.“
Berry hafði erindi sem erfiði. „Strax eftir þennan hádegisverð hringdi hún í umboðsmann minn og sagði honum að ég fengi hlutverkið. Ég er í skýjunum. Ég er mjög hrifin af konum og kvenleikstjórum. Þetta er lítil mynd um fólk, brot úr lífinu, og frábært mótvægi við myndir eins og X-Men. Mér finnst mjög gott að blanda þessu saman og svissa milli kvikmyndagreina og persónugerða.“
Langar stundum að öskra
Berry segir úrtölurnar sem hún fékk að heyra þegar hún lýsti áhuga sínum á að leika í mynd Bier dæmigerðar fyrir fordómana sem hún hefur mátt mæta á ferlinum. „Mér var sagt að það væri ómögulegt að láta mig leika eiginkonuna þar sem þá yrðu börnin að vera blönduð. Eiginmaðurinn mætti ekki vera svartur líka vegna þess að þá yrði þetta „svört“ mynd. Mig langar stundum að öskra þegar ég heyrði þetta og hugsaði með mér: „Jæja, þá byrjum við eina ferðina enn.“ Af hverju get ég ekki bara verið Halle Berry sem er nógu gömul til þess að leika móður og fengið hlutverkið út á það? Stundum nægir að spyrja svona til þess að fólk ranki við sér og spyrji á móti „Já, af hverju ættirðu ekki að geta það?“ Ég er enn að glíma við þetta í Hollywood.“
| 16:20 |