»  skrif  »  Björgunarsund aumingja

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Björgunarsund aumingja
Þriðjudagur, 29. ágúst 2006

Ég er aldrei verri við sjálfan mig en þegar ég er góður við mig. Þá læt ég það eftir mér að drekka tvo lítra af kóki á dag, fæ mér inni á milli tíu svarta kaffibolla og reyki tuttugu sígarettur með þessum himnesku en baneitruðu drykkjarföngum.

Ég hef svo sem komist ágætlega upp með ofneyslu löglegu fíkniefnanna sykurs, nikótíns og koffíns en afleiðingar neyslunnar eru skyndilega farnar að segja til sín. Líkamleg hnignun mín hefur verið svo hröð að mér er skapi næst að tala um stökkbreytingu. Ég reyndi fyrst að afsaka þetta með því að aldurinn væri farinn að segja til sín en komst ekki hjá því að viðurkenna fyrir sjálfum mér að það væri fíkniefnunum mínum að kenna að ég væri orðin svefnvana taugahrúga með stöðuga magaverki og handskjálfta.

Ég stend því frammi fyrir tveimur augljósum valkostum; halda áfram á sömu braut eða snúa blaðinu við og endurheimta fyrri þrótt. Ákvað að velja seinni kostinn og ýmist draga úr eða hætta neyslu þessara undursamlegu efna. Í kjölfar jafn stórrar ákvörðunar gengur maður í gegnum sorgarferli þar sem líf manns hefur meira og minna hverfst um þetta dót sem hefur haldið manni vakandi og gangandi árum saman.
Þetta er svipað því og að missa góðan vin en rétt eins og maður kemst yfir slíkt getur maður hrist þessa sorg af sér. Það þarf bara eitthvað annað að koma í staðinn og í mínu tilfelli er það sund. Það er greinilega eitthvað til í þeim lífseiga orðrómi að hreyfing sé manni góð og bæti geðslag og andlega líðan.

Nokkrar ferðir í Vesturbæjarlauginni nægja til þess að öll löngun í kaffi og sígó hverfur og maður stígur upp úr vatninu eins og nýr maður. Hefur skolað af sér syndir fortíðarinnar og getur því slakað á ferskur í heita pottinum og hlustað á mergjaðar samræður alvitringanna sem þar halda til. Jafn kjarngott andans fóður finnur maður ekki í slímusetum fyrir framan sjónvarpið, svo mikið er víst.


| 10:59 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff