Þriðjudagur, 15. ágúst 2006
Ísland og þá fyrst og fremst Reykjavík er sögusvið bandarísku myndasögunnar Umbra sem fjallar um rannsókn lögreglunnar á dularfullu morðmáli.
Sagan hefst árið 1999 þegar beinagrind finnst í helli úti á landi. Meinafræðingurinn Askja fær það verkefni að rannsaka beinin og kemst fljótlega að því að ekki er allt með felldu þar sem beinin virðast vera af einhvers konar frummanni sem hefur verið ráðinn bani með byssukúlu.
Umbra er eftir myndasöguhöfundinn Murphy sem hefur helst unnið sér það til frægðar að skrifa myndasögur um stökkbreyttu bardagaskjaldbökurnar Teenage Mutant Ninja Turtles en hann hefur heldur betur skipt um gír og yrkisefni.
Sagan skiptist í þrjá hluta og tvö fyrstu blöðin eru komin til landsins. Pétur Yngvi Yamagata hjá myndasöguversluninni Nexus segist ekki þekkja vel til fyrri verka Murphys en hann hafi einfaldlega ekki getað stillt sig um að kaupa Umbra. „Það er eitthvað ómótstæðilegt við bandaríska sakamálasögu sem gerist á Íslandi.“
Askja vinnur náið með rannsóknarlögreglukonunni Freyju að rannsókn málsins og samstarfið er svo farsælt að þær enda saman í eldheitum ástarleik í Bláa lóninu að næturlagi.
Leikurinn æsist svo enn frekar þegar rannsóknarstofa Öskju er sprengd í loft upp og byssumaður sýnir henni banatilræði í kjölfarið. Freyja skerst þá í leikinn, skiptist á skotum við misindismanninn á götum Reykjavíkur þar til eltingarleikur hennar við skúrkinn nær hámarki í Hallgrímskirkju.
Það er því engin lognmolla í henni Reykjavík þegar Murphy leyfir hinni vösku Freyju að leika þar lausum hala og það er ljóst að höfundurinn þekkir ágætlega til staðhátta. Varla er þó hægt að segja að íslenskur raunveruleiki blasi við á síðum myndasögunnar þó að persónurnar sjáist drekka „brenevin“.
Þessi hildarleikur sem hófst á götum Reykjavíkur verður til lykta leiddur í þriðja hefti Umbra en allt útlit er fyrir að lokauppgjörið muni fara fram á Grænlandi en Murphy segir skilið við Öskju innan um ísjakana við Grænlandsstrendur í lok annars hluta.
| 10:23 |