»  skrif  »  Maðurinn er alltaf eins

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Maðurinn er alltaf eins
Fimmtudagur, 17. ágúst 2006

Einum af mínum skárri kunningum, líklega þeim besta, var einhverju sinni tjáð að hann „kynni sig ekki“. Þessi dagfarsprúði og góði drengur kippti sér ekkert upp við þetta og svaraði að bragði: „Ég veit það og ég vil ekki læra mig.“

Mér fannst þetta þrælgott svar á sínum tíma enda sjálfur lítið fyrir það að taka leiðsögn og hlusta á gagnrýni.
Eftir því sem árin hafa liðið hef ég svo gert mér grein fyrir því að það er hvort eð er ekki hægt að „læra sig“ vegna þess að maður er og verður alltaf eins. Fólk þroskast ekki með aldrinum og breytist ekki heldur þó við reynum að telja okkur trú um annað.

Grunnpersónuleikinn kemur fljótt fram og á lífsleiðinni gerist það eitt að hann hleður utan á sig alls konar stælum og tiktúrum úr umhverfinu. Þessu fylgir að fólk bítur í sig fánýt prinsipp og kennisetningar, burðast með hugsjónir og jafnvel háleit markmið um að breyta heiminum. Þetta er auðvitað blekking þar sem það er tómt mál að tala um að ætla að breyta einhverju þegar maður getur ekki einu sinni breytt sjálfum sér.

Í þeim darraðardansi sem lífið er kvarnast viðhengin svo, blessunarlega í flestum tilfellum, af persónuleikanum, stælarnir dofna og hugsjónaeldurinn kafnar. Þetta er misskilið sem þroski eða eitthvað álíka djúpt en það eina sem skiptir máli er að það sem eftir stendur er massívur saltstólpinn sem við vorum í upphafi. Bröltið sem er að baki hættir að skipta máli og maður reynir að telja sér trú um að stólpinn sé þrátt fyrir allt gegnheill og góður. Það er hins vegar líka aukaatriði þar sem við erum handan góðs og ills og fólk er annað hvort bara skemmtilegt eða leiðinlegt. Þau persónueinkenni koma fram strax í frumbernsku og eru uppistaða óbreytanlega saltstólpans sem við erum, vorum og munum vera. Bókstafstrúarfólk getur ekki einu sinni breytt þessu sem er verr vegna þess að það var, er og mun alltaf vera leiðinlegt.


| 10:58 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff