»  skrif  »  Mótmælendur með marbletti

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Mótmælendur með marbletti
Fimmtudagur, 10. ágúst 2006

Ég er veikur fyrir mótmælum og mótmælendum og finnst að fólk ætti að gera miklu meira af því að taka afstöðu og sýna hana í verki með hrópum, köllum og mátulegum bægslagangi.
Mótmæli eru í eðli sínu töff vegna þess að þau fela í sér andóf og engum mótmælanda ætti því að vera brugðið þó hann mæti mótstöðu þegar hann kemur til leiks, væntanlega tilbúinn til þess að fórna lífi og limum fyrir sannfæringu sína.

Mótmæli eru í eðli sínu töff einfaldlega vegna þess að þau fela í sér andóf og engum mótmælanda ætti því að vera brugðið þó hann mæti andstöðu þegar hann mætir til leiks, væntanlega tilbúinn til þess að fórna lífi og limum fyrir sannfæringu sína.

Íslendingar eru vanir friðsamlegum mótmælum enda er blóðhiti okkar við frostmark og sannfæringarkrafturinn oft ekki meiri en svo að veðrið getur haft veruleg áhrif á mótmælaáhugann. Maður gat því ekki annað en dáðst að fólkinu sem nennti að brölta að Kárahnjúkum til þess að mótmæla virkjunarframkvæmdum þar og tefja þær um leið með því að hlekkja sig við vinnuvélar.

Sjarminn fór hins vegar fljótt af þessu liði þegar það skarst í odda með því og lögreglu og mótmælendurnir hlupu grenjandi í fjölmiðla, einhverjir með kúlu á hausnum og marbeltti, og klögðuðu lögguna fyrir harðræði.
Því hefur löngum verið haldið fram að Íslendingar kunni ekki að mótmæla og þá oft horft til Frakka í samanburðinum en þeir kunna öðrum fremur að mótmæla þannig að eftir er tekið. Mikill meirihluti mótmælendanna á Kárahnjæúkum eru sagðir koma að utan og því haldið fram að “atvinnumótmælendur” séu á ferð. Þetta hlýtur að vera af og frá þar sem mótmælendur sem bera sig illa undan stympingum við lögreglu hljóta í besta falli að vera amatörar.

Þeir sem hafa verið með óspektir á almannafæri, fullir í miðbænum, vita að lögreglan hefur víðtæka heimild til þess að hafa afskipti af þeim og jafnvel fjarlægja. Þá eru flestir líka með það á tæru að þegar maður sýnir mótþróa við handtöku á lögreglan það til að bregðast við af nokkurri hörku.
Núningur milli yfirvalda og andhófsfólks er óhjákvæmilegur í almennilegum mótmælum og þeir sem treysta sér til þess að hlekkja sig við þungavinnuvélar verða einnig að vera undir það búnir að á þeim sé tekið. Annars er betur heina setið en af stað farið. Það er töff að mótmæla en í meira lagi aumingjalegt að væla síðan undan því að lögreglan hafi haft afskipti af manni enda segir það sig sjálft að ef heimurinn væri svo fallegur og góður að mótmælendur gætu fengið að vaða uppi hvar sem er hindrunarlaust þá þyrftum við ekki að mótmæla neinu.



| 10:08 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff