»  skrif  »  Tískulögga í hvítum skóm

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Tískulögga í hvítum skóm
Mánudagur, 14. ágúst 2006

Einhverra undarlegra hluta vegna þykir margt það besta sem gert var í tónlist, kvikmyndum og sjónvarpi á níunda áratugnum átakanlega hallærislegt í dag. Líklega hefur þetta mest að gera með fatatísku tímabilsins sem er vissulega skelfileg þegar horft er um öxl.
Lögguþættirnir Miami Vice eru eins „eitís“ og hugsast getur og eru í raun frábær heimild um tíðaranda þessa bleika áratugar sem gat af sér ófá tískuslysin í tónlist, fatnaði, sjónvarpi og kvikmyndum.

Þættirnir sjálfir eldast hins vegar ágætlega enda voru þeir byltingarkenndir á sínum tíma og hafa haft meiri áhrif á seinni tíma sjónvarpsefni en margan grunar og hljóta að teljast til bestu menningarafurða tímabilsins.

Metródalsmaðurinn

Leynilögreglan Sonny Crockett var þungamiðja þáttanna og leikarinn Don Johnson fór mikinn í hlutverki hans en frægðarsól hans hefur aldrei risið jafn hátt og þegar hann komst í fataskáp Crocketts.
Fötin sköpuðu manninn í þessu tilfelli, bæði hvað leikarann og persónuna varðar og Johnsons er helst minnst fyrir klæðaburðinn sem hafði gríðarleg áhrif á karla­tísku níunda áratugarins.

Fatahönnuður þáttanna lagði mikla áherslu á að föt Crocketts væru þægileg, kæruleysisleg en um leið smart. Hann var því jafnan í ljósum eða hvítum jökkum, víðum buxum, ermalausum bolum í pastellitum og ætíð berfættur í óreimuðum skóm. Þá skartaði hann jafnan þriggja daga skeggi, svörtum sólgleraugum og reykti í nánast hverju atriði. Þarna var kominn fram töffari nýrra tíma og margir vilja meina að Johnson hafi í hlutverki Crocketts verið frumútgáfa metrómannsins svokallaða; útlit hans var útpælt og hann var karlmennskan holdi klædd í mjúkum litum en með Miami Vice var pastellitum rudd braut inn í karlatískuna.

Hallærisgaurar á útleið

Bandarískar sjónvarpslöggur höfðu hingað til meira eða minna verið hálfgerðir hallærisgaurar; sjúskaðir durtar sem höfðu um allt annað að hugsa en fataval og litasamsetningu.
Framleiðendur Miami Vice voru ákveðnir í því að kynna nýja tegund löggutöffara til sögunnar og skýldu sér á bak við það að Crockett og Tubbs væru engar venjulegar löggur. Þeir væru leynilöggur í gervi eiturlyfjasala og þyrftu því að klæða sig og hegða sér í samræmi við það. Þess vegna gátu þeir keyrt um á Ferrari , siglt hraðbátum og klætt sig í föt sem engin lögregla á venjulegum launum hefði efni á.
Philip Michael Thomas lék Tubbs, félaga Crocketts, og mátti láta sér lynda að standa í skugga Johnsons. Tubbs var stillt upp sem andstæðu Crocketts í fatavali. Hann var öllu virðulegri, jafnan í tvíhnepptum jakkafötum með silkimjúka áferð.
Saman höfðu þessar tvær persónur gríðarleg áhrif á klæðaburð karlmanna á níunda áratugnum sem stældu þá báða í gríð og erg þó losaralegur klæðaburður Johnsons hafi vissulega náð meiri hylli.

Tónlistarmyndbönd og skotbardagar

Miami Vice þættirnir hresstu heldur betur upp á staðnaða lögguþáttaflóruna í bandarísku sjónvarpi árið 1984 enda vildi höfundur þeirra, Anthony Yerkovich, gera eitthvað nýtt.
Sagan segir að grunnhugmyndin að Miami Vice hafi verið sú að gera lögguþátt undir áhrifum MTV. Andi MTV svífur því yfir vötnum í Miami, bæði í klippingum og sviðsmyndum, auk þess sem heilu tónlistarmyndböndin voru fléttuð inni í söguþráð þáttanna. Þetta er óneitanlega ódýr aðferð til þess að teygja á söguþræðinum en þessi vinnubrögð tíðkast enn þann dag í dag. Í tilfelli Miami Vice þjónaði tónlistin þó ákveðnum tilgangi og lögin sem komust að í þáttunum voru öll vinsæl þegar þættirnir fóru í loftið og styrktu þannig tengsl áhorfenda við þættina og tónlistariðnaðinn.

Miami Vice voru stílfærðari þættir en áður þekktist í amerísku sjónvarpi og mikil vinna var lögð í sviðsmyndir, búninga, tónlistarval og allt þess háttar. Leikstjórinn Michael Mann var einn framleiðenda þáttanna og honum er eignaður heiðurinn af glæsilegri umgjörðinni og „Miami Vice-stílnum“ eins og hann leggur sig. Mann gerði enda í raun engan greinarmun á kvikmyndum og sjónvarpi og leit á hvern þátt sem 50 mínútna bíómynd.

Réttir menn á réttum tíma

Miami Vice var ekki spáð langlífi í fyrstu og NBC-sjónvarpsstöðin hafði ekki meiri trú á þáttunum en svo að hún setti þá á dagskrá klukkan 22 á föstudagskvöldum sem þótti vonlaus tími fyrir nýja þætti þar sem þeir máttu þá etja kappi við rótgróna þætti á borð við Dallas.
Miami Vice náði þó strax vinsældum og eftir fyrsta árið fengu þættirnir fimmtán tilnefningar til Emmy-verðlauna. Þeir voru því greinilega komnir til að vera og voru framleiddir til ársins 1989. Þættirnir lifa þó enn góðu lífi enda verður framlag þeirra til poppmenningarinnar og áhrif á tískustrauma seint vanmetið. Endurútgáfur þeirra á DVD-diskum seljast vel og þeir eru þeim sem muna tímana tvenna ofarlega í huga þessa dagana eftir að Michael Mann blés nýju lífi í Crockett og Tubbs með stórmyndinni Miami Vice þar sem stórstjörnurnar Colin Farrell og Jamie Foxx fylla skörð Johnsons og Thomas.


| 11:51 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff