»  skrif  »  Að ganga uppreistur

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Að ganga uppreistur
Mánudagur, 11. september 2006

Syndaregistrið mitt er langt og svo skrautlegt að ég á bágt með að bera höfuðið hátt og horfast í augu við fólk. Lögbrot mín eru þó góðu heilli öll fyrnd enda hef ég ætíð gætt þess að stela aðeins því sem er steini léttara. Skuldir mínar við sam­félagið eru því að fullu uppgreiddar ef frá eru taldar ógreiddar stöðumælasektir og vangoldin bifreiðagjöld.

Ég get því ekki leitað á náðir yfirvalda og fengið þau til að létta af mér byrðum sektarinnar og strjúka burt flekkina sem eigin subbuskapur og dómgreindarleysi hefur skilið eftir á mannorði mínu.

Mér finnst samt að allir eigi að fá annað tækifæri og þá ekki síst ég sjálfur enda á ég margt ógert í lífinu og þætti vænt um að geta athafnað mig án þess að fortíðin sé mér stöðugt fjötur um fót.
Gallinn við þetta allt saman er að fyrirgefning synda minna er flóknara ferli en svo að þær verði afskrifaðar með undirskrift þriggja einstaklinga. Þeir sem ég hef brotið gegn eru töluvert fleiri og eru þar fyrir utan margir hverjir tregir til að fyrirgefa mér og veita uppreist æru vegna þess að ég hef ekki sýnt iðrun.

Iðrunin er auðvitað forsenda fyrirgefningarinnar en ég er það forhertur að ég sé eftir því einu að hafa verið staðinn að verki og látinn gjalda fyrir gjörðir mínar, hegðun og framkomu. Afglöp mín íþyngja mér samt sem áður, líklega fyrst og fremst vegna þess að þau hafa gert mig að hornkerlingu í samfélagi mannanna.

Mér þætti samt betra ef ég gæti gengið uppreistur með nýskrúbbaða æru og bið hér með þá sem ég hef brotið á náðarsamlega um fyrirgefningu. Verst samt að hugur fylgir ekki máli og ég geri þetta aðeins með eigin hagsmuni að leiðarljósi þannig að uppreistin mun varla veita mér neina hugarró. Það gerist ekki fyrr en iðrunin kemur frá hjartanu.


| 8:50 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff