»  skrif  »  Lífsgleði á hlaupabretti

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Lífsgleði á hlaupabretti
Miðvikudagur, 27. september 2006

Mér hefur verið sagt árum saman að það sé lífsnauðsynlegt að rækta líkamann og það bæti meira að segja andlega heilsu að sinna skrokknum og hreyfa sig reglulega. Hingað til hef ég kosið að afskrifa þessar hugmyndir sem bábiljur og kerlingabækur enda er ég latur að eðlisfari og hef ekki séð neina glóru í því að puða og svitna ótilneyddur. Það þarf því ekki að taka það fram að ég hef haft megnustu andstyggð á líkamsræktarstöðvum sem ég hef talið vera musteri heimsku og tilgangsleysis og hef alveg séð fyrir mér að einn hringurinn í Víti Dantes væri vel búinn þrekhjólum, hlaupabrettum og lyftingalóðum.

Ákvað samt um daginn að rífa mig upp og fara að sinna skrokknum, aðallega vegna þess að ég finn feigðina læðast aftan að mér og sé ekki fram á að ná fertugu með þessu áframhaldi. Ég yfirvann því meðfædda spéhræðslu mína og skellti mér í eitthvað sem heitir Laugar en þar afklæðist allt fína, ríka og fræga fólkið og spriklar innan um sauðsvartan almúgann.

Sjálfum fannst mér ég vera hinn minnsti maur þarna, grindhoraður og væskilslegur tittur, aftur orðinn næpuhvítur eftir að Spánarbrúnkan upplitaðist. Með einhverjum andlegum trixum tókst mér að einangra mig frá þessu ógnvekjandi og fráhrindandi umhverfi og hljóp eins og óður maður á brettinu á meðan ég horfði á Hómer Simpson aka sér í spikinu á flatskjánum. Rauk svo í lóðin og lyfti þeim af miklum móð og fann skrokkinn vakna af áralöngum dvala.

Þetta er greinilega alveg málið. Hjartað hefur haft gott af djöfulganginum og endorfínið sullast nú um í heilanum þannig að mér finnst lífið skemmtilegt og gulnuð haustlaufin falleg. Það er sennilega eitthvað til í þessu blaðri um heilbrigða sál í hraustum líkama eftir allt saman.


| 10:44 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff