»  skrif  »  Leitað á ný mið

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Leitað á ný mið
Fimmtudagur, 05. október 2006

Ég er búinn að vinna of lengi við fjölmiðla og er farinn að leita fyrir mér annars staðar. Staðan er hins vegar frekar þröng fyrir mann sem kann ekkert annað en að skrifa.

Eðlilegasta útgönguleiðin er vitaskuld að reyna fyrir sér sem almannatengill en hún er lokuð mér þar sem ég hef skömm á fólki sem snýr baki við blaðamennsku til þess að slá ryki í augu fyrrum kollega sinna. Þetta er ekki ósvipað því að snúa bakinu við kvenréttindabaráttu til þess að gerast melludólgur og vart til eftirbreytni.

Maður gæti hins vegar skellt sér í prófkjör og komið sér á þing. Eftir því sem ég kemst næst eru engar menntunar- eða hæfniskröfur gerðar til alþingismanna en það hentar mér ákaflega vel. Verst bara að ég hef ekki skapið í þetta og veit fyrir víst að ég myndi fyrr eða síðar grípa til ofbeldis þegar ég yrði rökþrota í þrætum. Og þá yrði ég fjölmiðlamatur og það er sko ekki fýsilegt að verða aðalréttur á þeim bænum.

Það leystist snarlega úr þessari flækju minni um helgina þegar ég sá auglýst starf sem mig langar til að spreyta mig á. Topshop vantar verslunarstjóra og ég ætla að sækja um. Ég uppfylli flestar hæfniskröfur þó ég sé að vísu ekki á heimavelli þarna en það gerir þetta bara meira spennandi og krefjandi. Farið er fram á reynslu af verslunarrekstri og það vill svo skemmtilega til að ég vann á bensínstöð árum saman og veit allt um daglegan rekstur verslana. Þá er þess krafist að maður sé nákvæmur og skipulagður í vinnubrögðum, hafi frumkvæði og metnað, kunni ensku og sé hæfur í mannlegum samskiptum. Gæti verið lýsing á blaðamanni. Það eina sem klikkar er „brennandi áhugi á tísku“ en samkvæmt Oscari Wilde er hún fyrirbæri sem er svo ömurlegt að það þarf að breyta henni á hálfs árs fresti. Það er verkefni sem ég er til í að taka að mér og mun brátt kynna nýja vetrarlínu: bláar gallabuxur, svartar skyrtur, enn svartari leður­jakka og kúrekastígvél.


| 16:06 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff