Vesper Lynd er frábær persóna, flókin og margbrotin,“ segir Eva þegar hún útskýrir hvað varð til þess að hún tók að sér hlutverk Bond-píunnar Vesper í Casino Royale. „Ástarsagan í myndinni er líka óvenjuleg, er tilfinningahlaðnari og ristir dýpra en fólk á að venjast í Bond-mynd. Það má því segja að handritið hafi dregið mig að þessu verkefni fyrir utan það að ég hef lengi verið hrifin af Daniel Craig sem leikara og gat ekki slegið hendinni á móti tækifæri til að fá að vinna með honum.“
Er ekki Bond-gella
Eva er ekki hrifin af hugtakinu Bond-gella og ætlar ekki að láta stimpla sig sem slíka mótþróalaust. „Ég tók ekki að mér hlutverk Bond-gellu heldur hlutverk Vesper Lynd. Ég vildi leika í Casino Royale vegna þess að handritið var gott. Þetta er góður þriller, persónurnar eru áhugaverðar og mig langaði að vinna með Daniel. Allt lagðist þetta á eitt og gerði myndina að spennandi verkefni.
Ég hef ekki séð allar Bond-myndirnar en við sitjum uppi með mjög afmarkaða skilgreiningu á Bond-stúlkunum sem eru fallegar konur á strönd með flott brjóst og æðislegan líkama. Vesper er ekki svona. Ég heillaðist af persónunni og kann illa við þennan Bond-gellu merkimiða.“
Eva fæddist í París árið 1980. Móðir hennar er frá Alsír og var leikkona þangað til hún sneri sér að ritun barnabóka og faðir hennar er sænskur tannlæknir. Eva ólst upp í Frakklandi og segist ekki kunna stakt orð í sænsku. „Pabbi kenndi mér enga sænsku,“ segir hún og bætir því við að hún kunni þó vel við sig í Stokkhólmi þar sem hún var stödd þegar viðtalið fór fram og var einmitt nýkomin úr löngum göngutúr um borgina.
Hlutverk sem litið er hornauga
Þær hlaupa á tugum leikkonurnar sem hafa hér áður gengið inn í hlutverk lagskvenna ofurnjósnarans og dæmin um að sú ákvörðun hafi gert út af við frekari frama í kvikmyndum eru ófá. Eva neitar því ekki að hún hafi mögulega tekið einhverja áhættu með þessu.
„Ég vona ekki en maður veit aldrei. Bond-stelpurnar hafa margar verið fyrirsætur og hafa kannski ekki haft neinn áhuga á að verða leikkonur. Þær hafa ef til vill ekki heldur tekið þetta alvarlega, án þess að ég vilji vera að gagnrýna þær, ekki síst þar sem ég hef ekki séð allar myndirnar. Þá megum við ekki gleyma því að margir líta þessa rullu hornauga og leikkonur verða að vera við því búnar að illar tungur hrópi: „Guð minn góður, hún er Bond-gella. Hún getur ekki leikið!“ Maður verður bara að vera ákveðinn og ég veit að ég vil halda áfram að leika eftir þessa mynd. Við höfum líka alveg dæmi um alvöru leikkonur eins og Halle Berry og Sophie Marceau sem hafa verið Bond-gellur og lifað það af. Sumar hafa aldrei náð þessum stimpli af sér, jafnvel ekki áratugum eftir að þær léku í Bond-mynd. Það er kannski ekki það besta sem kemur fyrir mann að festast í Bond-píu hlutverkinu en það er bara þessi merkimiði sem fer í taugarnar á mér. Annars finnst mér þetta allt bara skemmtilegt.“
Breytir Bond í skíthæl
James Bond féll fyrir Tracy Di Vicenzo í On Her Majesty’s Secret Service og gekk í heilagt hjónaband sem fékk óvæntan og sorglegan endi á brúðkaupsdaginn þegar erkifjandinn Blofeld myrti brúðina skömmu eftir athöfnina. Annars hefur Bond ekki verið þekktur fyrir að láta djúpar tilfinningar í garð kvenna rugla sig í ríminu og Vesper er líklega sú eina sem hann elskaði af öllu hjarta.
„Bond er hrárri og viðkvæmari í Casino Royale en fólk á að venjast,“ segir Eva en myndin fjallar um fyrsta verkefni hans sem 007 og byggir á fyrstu skáldsögunni um hann.
„Hann er hrokafullur en í samskiptum sínum við Vesper er hann ekki alger karlremba. Hún stendur uppi í hárinu á honum, gerir grín að honum og töffarastælunum í honum og þau verða ástfangin. Hann er tilfinningaríkur og mannlegur og er alls ekki að spila með hana.“
Vesper fer frekar illa með Bond og Eva vill ekki útiloka að þau miklu áhrif sem hún hefur á sálarlíf hans ráði miklu um framkomu hans við konur seinna meir. „Samband hans og Vesper hefur djúpstæð áhrif á hann og hegðun hans síðar meir, eða það hlýtur að vera þar sem við höfum séð það í hinum myndunum að hann er alger skíthæll.“
Eva segist hafa hraðlesið Casino Royale eftir Flemming. „Mér fannst hún mjög ólík handritinu og Bond er meiri remba þar. Þegar hann sér Vesper þar fyrst hefur hann strax orð á því að hann langi til að sofa hjá henni en svo verður hann ástfanginn af henni þannig að þetta er líkt að því leyti. Vesper er í báðum tilfellum bæði hörð og auðsæranleg og í myndinni reynir hún að standast Bond og vill ekki falla fyrir honum.“
Ómögulegt að búa með Bond
Það er hins vegar ekki ofsögum sagt af Bond að allar falla konurnar fyrir honum áður en yfir lýkur. „Hún reynir en ræður ekki við sig. Ég veit ekki hvað það er við hann sem konur falla fyrir. Þetta er galdur sem ekki er hægt að útskýra. Kannski er það vegna þess að hann er hættulegur, getur drepið konu og elskað hana og lifir spennandi lífi. En þetta er auðvitað ævintýri og ég held að það væri ekki eftirsóknarvert hlutskipti í raunveruleikanum að vera með James Bond. Það væri of krefjandi og maður væri með stöðugar áhyggjur af því hvar hann væri og hvað hann væri að gera. Uppvaskið myndi hlaðast upp og lífið færi allt úr skorðum. Þetta er ómögulegt.“
Er ekki femínisti
Þó Eva hafni Bond-gellu stimplinum og telji sig og sína persónu vera annað og meira en barmfagran hasarkropp á strönd og hún hafi tekið hlutverk Vesper að sér á sínum forsendum þá getur hún ekki skilgreint sig sem femínista.
„Nei. Ég er ekki femínisti. Fyrir mér er þetta hugtak klisja um reiðu, bitru konuna og sterku lesbíuna. Þær hafa samt unnið mikið og gott starf í gegnum tíðina, við höfum kosningarétt og stöndum jafnfætis körlum. Femínismi er svo sterkt orð. Æi, ég veit það ekki. Ég er ekki nógu klár til að svara þessu af einhverju viti.“
| 11:00 |