Fyrsta James Bond-bókin eftir Ian Flemming, Casino Royale, kom út árið 1953 þannig að það er óhætt að segja að Bond sé í grunninn kaldastríðshetja. Hann tókst strax í upphafi á við skúrka frá Sovétríkjunum, útsendara KGB og aðra austantjaldstudda sem ógnuðu hinum frjálsa heimi eftirstríðsáranna. Flemming skrifaði alls tólf bækur um njósnarann sem nú hafa, með Casino Royale, allar ratað á hvíta tjaldið.
Fyrsta Bond-myndin kom út árið 1962 og síðan þá og allt til ársins 1987 stóð 007 vaktina í bíó og var eina von hins vestræna heims í baráttunni við Rússagrýluna. Þessi dyggasti njósnari hennar hátignar hennar hefur reynt að halda sjó síðan og verið svolítið eins og steingervingur í breyttum heimi og nú kemur það í hlut Daniels Craig að skila gömlu kaldastríðshetjunni inn í 21. öldina.
Þjáningin er féþúfa
„Ég lít fyrst og fremst á Bond-myndirnar sem skemmtun og þetta er ekki pólitísk mynd,“ segir Craig og er talsvert niðri fyrir. „Þetta er fyrst og fremst skemmtun og ég er ekkert að stíga upp á kassann og koma með einhverjar pólitískar yfirlýsingar í myndinni. Auðvitað höfum við samt ýmislegt að segja og persónurnar gera það. Skúrkurinn Le Chiffre, til dæmis, er skrifaður 1953 en er alveg í takt við samtímann. Honum er sama fyrir hvern hann vinnur svo lengi sem hann græðir peninga á því. Við sjáum það allt í kringum okkur í dag að það er verið að græða á þjáningu fólks þannig að það eru mórölsk skilaboð í myndinni. Bond er að reyna að kljúfa þessa dellu, reyna að ná vondu mönnunum og bjarga þannig heiminum. Hvernig hann gerir það er svo það sem gerir myndina skemmtilega.”
Bond er ekki góður maður
Sagan segir að Ian Flemming hafi ekki síst skapað Bond til þess að hressa upp á sjálfstraust breskrar þjóðarsálar sem stóð í skugga tveggja stórvelda eftir að seinni heimsstyrjöldin hafði verið gerð upp. Það má segja að það hafi tekist þar sem Bond hefur orðið ofan á í viðskiptum stórveldanna í sýndarveruleika kvikmyndanna í 44 ár og hin ramma enska taug njósnarans heillar Craig.
„Hvað er James Bond fyrir mér? Hann er margt. Hann er Roger Morre, Sean Connery, George Lazenby, Pierce Brosnan. Sem leikari lít ég fyrst og fremst á hann sem persónu. Þessi manngerð á sér langa sögu í bókmenntum og kvikmyndum. Hann er einmana stríðsmaðurinn sem berst fyrir réttlætinu og við höfum séð hann í ótal bíómyndum. Hjá Kurosawa og Sergio Leone er í það minnsta einn svona maður í hverri mynd.
Clint Eastwood er gott dæmi um þetta í myndum Leones. Við vitum ekki mikið um hann en það þarf að berjast fyrir réttlætinu og hann gerir það. Bond er svo sér á parti þar sem það er eitthvað einkennilega breskt við hann. Nú er ég alls ekki brjálaður Breti eða veifa fána okkar í þjóðrembu við öll tækifæri en mér finnst kjarninn í Bond vera dyggðugur og að mínu mati er það að vera breskur að vera heiðarlegur. Ég er ekki að segja að hann geri ekki slæma hluti. Hann er vondur maður sem drepur fólk og hann er ekkert sérstaklega góður við konur en innst inni er hann dyggðugur og heiðarlegur. Hann klárar málin, leysir sín verkefni og nær vonda karlinum.“
Kafað dýpra ofan í Bond
Þó Casino Royale sé fyrsta skáldsaga Flemmings um Bond hefur hún ekki verið notuð sem grunnurinn að Bond-mynd fyrr en nú sem er að mati Craigs mjög heppilegt enda má segja að með nýju myndinni sé farið með Bond aftur á byrjunarreit.
„Það er kannski full langt gengið að tala um byrjunarreit en við förum þess á leit við áhorfendur að þeir trúi því að við séum að fara aftur til upphafsins. Ástæðan fyrir því að ég var til í að gera þetta var að með þessu móti gátum við gert eitthvað öðruvísi og að mínu mati hefði verið tilgangslaust að fara út í þetta nema við hefðum getað farið með Bond út á nýjar brautir. Þetta þýðir samt alls ekki að Casino Royale sé ekki Bond-mynd vegna þess að það er hún svo sannarlega. Við köfum hins vegar dýpra ofan í persónuna og skoðum hvers vegna hann er eins og hann er. Ef við höldum svo áfram og gerum fleiri myndir þá erum við komin með þennan grunn. Ég vona að við vinnum nýja áhorfendur með þessu um leið og eldri aðdáendur Bonds fá skýrari sýn á það sem drífur hann áfram. Af hverju hann hegðar sér eins og hann gerir, hvers vegna hann er karlremba og kemur fram við fólk eins og hann gerir, hvernig hann klárar málin og upp úr hverju ofbeldið sprettur.“
Connery lagði línurnar
Craig er sjötti leikarinn sem tekur að sér hlutverk Bonds á 44 ára kvikmyndasögu persónunnar og hann viðurkennir að hann hafi ekki getað horft fram hjá forverum sínum og þeim tökum sem þeir tóku njósnarann. „Ég horfði á allar myndirnar aftur og aftur. Ég horfði á þær á meðan ég lék í München og svo aftur í fyrra. Ég gerði þetta aðallega til að ganga úr skugga um að við myndum ná hreinræktuðum Bond-augnablikum inn í Casino Royale. Ég get hins vegar ekki verið að velta mér upp úr samanburði fólks á mér og öðrum Bondum og ber mig ekki saman við þá sjálfur. Ég studdist samt sennilega mest við Sean Connery og sjálfsagt hafa allir sem hafa leikið Bond einhvern tíma sagt það sama. Hann skilgreindi hlutverkið og hann var harður. Til dæmis í From Russia With Love sem er ekki aðeins uppáhalds Bond-myndin mín heldur ein af mínum uppáhaldsbíómyndum. Hún er svo stílfærð og ofbeldisfull og stenst tímans tönn mjög vel. Ein ástæðan fyrir því er Robert Shaw sem er frábær í hlutverki illmennisins. Hann er alvöru andstæðingur og maður trúir því að Bond sé í hættu þar sem Shaw gæti hæglega drepið hann. Ég held að við náum þessu sama í Casino Royale með Le Chiffre enda tekst honum næstum að fella Bond.“
Sá sig ekki sem Bond
Harðir Bond-aðdáendur fóru margir hverjir á límingunum þegar tilkynnt var um ráðningu Craigs í hlutverkið og óhætt er að segja að farið hafi verið út í áróðursherferð gegn honum á netinu. Sjálfur hafði Craig ákveðnar efasemdir enda hafði hann aldrei séð sig fyrir sér sem James Bond.
„Ég sá sjálfan mig ekki fyrir mér í þessu hlutverki enda er ekki hægt að segja að Bond komi í rökréttu framhaldi af því sem ég hef verið að gera. Það er ekkert í fyrri myndum mínum sem gerir mig að augljósum kosti til að leika Bond.“
Craig neitar því þó ekki að hugmyndin hafi kitlað hann enda er hann mikil aðdáandi Bonds, hefur lesið flestar bækur Flemmings og margséð allar myndirnar. „Þegar ég var krakki ímyndaði ég mér að ég væri Bond en átti samt ekki von á þessu og þegar Barbara Broccoli, framleiðandi myndanna, hafði samband við mig kom það eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég var hikandi í fyrstu, ekki síst vegna þess að ferill minn hefur verið á góðri siglingu. Mér hefur gengið vel og hef fengið tækifæri til að vinna með mörgum frábærum leikstjórum. Sjálfum finnst mér ég hafa skilað góðu verki í um árin og var sáttur við þá stöðu sem ég var í þannig að þegar Barbara hringdi fyrst fannst mér þetta ekki koma til greina. Hún sagðist hins vegar vera löngu búin að ákveða sig og sótti þetta mjög stíft. Hún er mjög ákveðin kona. Hún er líka Ítali og gerði mér einfaldlega tilboð sem ég gat ekki hafnað.“
Þorði ekki að sleppa Bond
Það felur óhjákvæmilega í sér bindingu að festa sig í hlutverki James Bond og skuldbindingin getur ekki annað en takmarkað verkefnaval þess leikara sem fer í föt Bonds. Craig treysti sér þó ekki til að sleppa tækifærinu. „Þegar á hólminn var komið áttaði ég mig á því að ég vildi ekki þurfa að horfa til baka eftir nokkur ár og sjá eftir því að hafa sleppt Bond. Ég veit ekki hvernig ég hefði átt að sætta mig við það, til dæmis eftir tvö ár, að þurfa að horfa upp á annan mann gera þetta. Þegar ég sá handritið sannfærðist ég svo endanlega. Sagan er frábær. Ég veit að ég er að selja myndina. Ég verð auðvitað að gera það en það breytir því ekki að hún er góð. Ástarsagan í henni er góð, Eva Green er frábær. Við erum með ofboðslega sterkan hóp leikara með Judi Dench fremsta í flokki, Mads Mikkelsen og Jeffrey Wright. Þetta small allt saman og myndin er einfaldlega góð og ég gat engan veginn sleppt þessu.“
Rífst ekki við reiða aðdáendur
Craig neitar því ekki að neikvæð viðbrögð við ráðningu hans hafi haft mikil áhrif á sig. „Þetta kom við mig í byrjun en svo ákvað ég bara að ég yrði að einbeita mér að því að klára verkefnið. Þetta kom aðallega frá fólki sem hefur sterkar skoðanir á James Bond og ég er einn af þeim og get svo sem skilið þetta. Umræðan fór mest fram á netinu og ég gat að mestu leitt hana hjá mér. Ég gat engan veginn farið að blanda mér í þessa umræðu með því að reyna að verja mig. Það er smekklaust og ég myndi aldrei gera það, sérstaklega ekki í svona tilfelli þar sem fólk tekur deiluefnið svona hátíðlega. Þar fyrir utan get ég svo sem engu svarað fyrr en fólk sér myndina. Ég segi því bara horfið á myndina og gagnrýnið hana svo. Líki ykkur ekki það sem ég er að gera þar þá er það í góðu lagi en ef þið ætlið að gagnrýna mig fyrirfram þá getið þið farið til fjandans.“
Njósnað um njósnarann
Þó Craig hafi komið víða við í kvikmyndum á liðnum árum þá er sú athygli sem fylgir því að leika Bond öllu meiri en hann hefur átt að venjast. „Þetta mun hafa breytingar á einkalíf mitt en ég verð að standa vörð um mína nánustu og mun verja einkalíf mitt með kjafti og klóm enda hefur þetta ekkert með ástvini mina að gera. Ég veit að ég verð að gefa eitthvað af sjálfum mér. Það er gjaldið sem ég verð að greiða fyrir þetta þó ég sé ekkert endilega sáttur. Sérstaklega þar sem 99 prósent af því sem skrifað er um mann er tómt bull en maður getur ekkert við því gert.Mér er ekki vel við að vera eltur á röndum og þversögnin í þessu er að ég leik njósnara en það er stöðugt verið að njósna um mig.“
| 9:11 |