»  skrif  »  Íslenskir rasistar eru fleiri en tveir

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Íslenskir rasistar eru fleiri en tveir
Fimmtudagur, 16. nóvember 2006

Íslendingar hafa lengi siglt sofandi ađ feigđarósi blindađir af geggjađri ranghugmynd um ađ ţeir séu fram úr hófi umburđarlyndir og ađ mestu lausir viđ kynţáttafordóma. Lítiđ sem ekkert hefur falliđ á ţessa brjáluđu sjálfsmynd okkar ţótt reglulega berist fréttir af andlegu og líkamlegu ofbeldi sem viđ beitum innflytjendur innan kerfisins, veggja heimilisins og ekki síst á almannafćri.

Fylgisaukning Frjálslynda flokksins í skođanakönnun strax í kjölfar undarlegrar stefnubreytingar í innflytjendamálum tekur af öll tvímćli um ađ undir lygnu yfirborđi sjálfsblekkingarinnar krauma bullandi kynţáttafordómar.
Ţeim sem eyđa nú öllu púđri sínu í ađ úthrópa ţessa rangnefndu frjálslyndismenn rasista vćri nćr ađ beina athygli sinni ađ ţví ađ íslenskir rasistar eru miklu fleiri en tveir. Vćru Magnús Ţór Hafsteinsson og Jón Magnússon rót vandans vćrum viđ í góđum málum.

Fylgisaukning ţeirra félaga kemur mér ţó síđur en svo á óvart enda hef ég ítrekađ á síđnćturbrölti mínu um Laugaveginn mátt horfa upp á og blanda mér í ryskingar ţar sem hörundsdökkt fólk hefur, fyrir engar sakir, átt undir högg ađ sćkja. Ekki alls fyrir löngu kjaftađi ég ţeldökkan Lundúnabúa úr klónum á ungum og vöskum ţjóđhetjum sem bauluđu hátt um arískan uppruna sinn en tćrt víkingablóđiđ var góđu heilli svo mengađ af spítti ađ berserkirnir gátu aldrei ákveđiđ almennilega hvort berja ćtti blessađan ferđamanninn eđa draga hann međ í dópleiđangur. Manngreyiđ vissi ekki hvađan á hann stóđ veđriđ, sagđist hafa ferđast víđa en aldrei lent í öđru eins.

Ţađ er svo miklu meira ađ í fari Íslendinga en bara ţađ sem er ađ endurspeglast í vćnisýkisvađli Frjálslyndra ţannig ađ okkur vćri öllum hollara ađ líta okkur nćr áđur en viđ förum međ löngu tímabćra umrćđu um innflytjendur og fordóma út í móa međ ţeim.


| 11:16 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff