»  skrif  »  Sækist ekki eftir heimsyfirráðum

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Sækist ekki eftir heimsyfirráðum
Laugardagur, 04. nóvember 2006

"Er þér sama þótt ég reyki?“ spyr Mads Mikkelsen og kveikir sér í filterslausri danski sígarettu um leið og hann byrjar vonlausa leit að öskubakka í hótelherberginu. Hann endar með hálftóma vatnsflösku, slær öskuna ofan í hana og spyr Íslendinginn hvort hann vilji að viðtalið fari fram á dönsku. Eftir stutt orðaskipti á ryðgaðri menntaskóladönsku blaðamanns verður enskan ofan á.
„Fólk á Íslandi sem er eldra en þú, kannski komið yfir fimmtugt, talar það ekki örugglega betri dönsku en þú?“ spyr Mikkelesen og þjóðernisvitund hans virðist síður en svo særð. „Þetta er í góðu lagi. Eigum við ekki að drífa í þessu svo ég komist í hádegismat?“ spyr hann svo danskur og ligeglad fram í fingurgóma.

Fer aldrei frá Danmörku

„Ég hef verið heppinn í gegnum tíðina og fengið tækifæri til að leika mörg og fjölbreytt hlutverk í dönskum bíómyndum og stundum koma upp tækifæri eins og þetta,“ segir Mikkelsen og gerir ekki mikið úr því að honum hafi boðist lykilhlutverk í jafn stórri mynd og Casino Royale. „Það er í sjálfu sér ekki mikill munur á þessu og öðru sem ég hef gert. Ég las handritið og leist vel á það og sló því til.“

Það er þó vitaskuld ekkert smámál að leika í James Bond-mynd enda hefur myndaflokkurinn notið gríðarlegra vinsælda í 44 ár. Mikkelsen lætur þetta síður en svo stíga sér til höfuðs og hefur ekki augastað á Hollywood. „Ég mun pottþétt alltaf gera myndir í Danmörku. Ég bý þar með fjölskyldunni minni, danska er tungumálið mitt og þar segjum við sögur úr umhverfi sem ég þekki. Ég mun alltaf búa þar en ef eitthvað annað kemur upp og ég get stokkið frá til að vinna þá er það bara gaman og ég mun auðvitað gera það.“

Ólst upp við Bond

Casino Royale er ekki fyrsta stóra stúdíómyndin sem Mikkelsen leikur í en hann lét til dæmis til sín taka í King Arthur ásamt þeim Clive Owen og Keira Knightley. „Ég vona samt að Casino Royale verði stærsta myndin sem ég hef leikið í, í það minnsta þegar kemur að aðsókn. Annars er þetta alltaf sama vinnan óháð því hversu mikið er í myndirnar lagt. Stóri munurinn liggur í fjöldanum sem vinnur í kringum mann. Við tökur á Casino Royale voru alltaf 400 manns á þönum í kringum mann. Í dönskum myndum er þetta ekki nema svona tuttugu manns.“

Mikkelsen ólst vitaskuld upp við Bond-myndirnar heima í Danmörku og telur sig hiklaust til aðdáenda njósnarans. „Ég var Bond-aðdáandi eins og allir aðrir þegar ég var krakki. Ég er samt enginn Bond-sérfræðingur en ég hef séð flestar myndirnar. Þetta er samt öðruvísi þegar maður er barn. Þá horfir maður bara á myndirnar og lifir sig inn í þær. Nú hef ég hins vegar stigið alla leið inn í þennan heim.“

Nýr Bond í breyttum heimi

Casino Royale fer með James Bond á nýjar slóðir og þykir um margt frábrugðin þeim 20 myndum um njósnarann sem eru að baki. Handrit myndarinnar byggir á fyrstu skáldsögu Ians Flemming um Bond og er því einhvers konar forleikur að myndabálknum. Hér kemur Bond fram ungur og reynslulítill, nýbúinn að vinna sér inn nafnbótina 007 og öðlast um leið leyfi til að drepa.

„Myndin er öðruvísi. Bond er öðruvísi en við höfum átt að venjast og skúrkurinn minn, Le Chiffre, er líka öðruvísi. James Bond er undir mikilli pressu í Casino Royale og það gerir hann hættulegan. Ég er maður undir enn meiri þrýstingi og það gerir mig jafnvel hættulegri,“ segir Mikkelsen. „Myndin er að þessu leyti mannlegri en hinar. Áhættuatriðin eru raunverulegri, slagsmálin harkalegri og myndin því ef til vill jarðbundnari. Þetta er samt ekta Bond og við erum enn með hraðskreiða bíla, flottar gellur og fyndin tilsvör.“

Mikkelsen segist telja að breytingarnar sem Bond gengur í gegnum nú hafi verið tímabærar. „Ég held að Bond hafi alltaf verið að þróast og breytast í takt við síbreytilega heimsmynd og framþróun í kvikmyndagerð. Myndirnar hafa samt allar lagað sig að heimi Bonds, þó þær séu misjafnar, og ég hef það á tilfinningunni að við höfum með þessari mynd færst nær upprunanum. Þetta er ekta Bond og það er allt til staðar en harkan er af gamla skólanum. Græjunum hefur fækkað þó hann sé auðvitað með eitthvað af dóti en við vildum frekar láta hann drepa með höndunum. Það gerir hann miklu hættulegri að mínu mati.“

Skúrkur nýrra tíma

Þegar talið berst að skúrkinum Le Chiffre bendir Mikkelsen á að áhorfendur ættu að geta séð samtímann speglast í honum. „Ég er hvorki brjálaður vísindamaður né að reyna að leggja undir mig heiminn. Ég er bara alþjóðlegur kaupsýslumaður sem er í þessu fyrir peningana. Þetta er manngerð sem við þekkjum flest vel og sjáum um þessar mundir.“
Mikkelsen reyndi að finna eitthvað í fari sínu sem gæti hjálpað honum að nálgast Le Chiffre. „Ég leitaði að þáttum í eðli mínu sem gætu átt við Le Chiffre. Það gat verið eitthvað smávægilegt sem ég magnaði upp og fór með það út í öfgar. Við erum þó alls ekki líkir og Le Chiffre býr ekki yfir öllum þeim tilfinningum sem bærast innra með mér. Ég er til dæmis kaldhæðinn en það er Le Chiffre alls ekki. Hann er mjög blátt áfram.“

Mikkelsen sá ekki ástæðu til að lesa frumtexta Ians Flemming þegar hann bjó sig undir hlutverkið. „Nei, ég las bókina ekki en mun gera það síðar. Ég sá ekki tilganginn með því. Við leikararnir vorum að vinna úr þessu tiltekna handriti með leikstjóranum og það er alls ekki sami textinn og í bókinni. Lestur hennar hefði bara ruglað mig í ríminu. Le Chiffre er, minnir mig, Alsírbúi í skáldsögunni en minn er landlaus. Það veit enginn hvaðan hann er. Hann er Dani,“ segir Mikkelsen og hlær. „Hann er í það minnsta með danskan hreim.“

Craig er fínn Bond

Mikkelsen ber hinum nýja Bond, Daniel Craig, vel söguna. „Hann er mjög góður leikari, það var gott að vinna með honum og við hjálpuðumst að við að láta senurnar okkar ganga upp. Þannig eiga leikarar að vinna. Hann á eftir að verða risastór stjarna núna en það er ekkert stjörnulegt við hann. Hann er fyrst og fremst góður leikari og leggur mikið upp úr því. Hann er eins og stjörnur ættu að vera.“

Mikkelsen heldur áfram og segir þennan nýja Bond sem birtist í Casino Royale henta Craig vel. „Daniel er hörkulegur en samt mjög ljúfur um leið. Hann talar fágaða ensku, eiginlega eins og Roger Moore þannig að hann er blanda af hörkutóli og aristókrata. Mér fannst líka eitthvað notalegt við að sitja andspænis honum í atriði þar sem við spilum póker og vita að á móti mér sæti maður sem gæti drepið mig. Með höndunum, gaffli eða hverju sem er. Styrkur þessa Bonds felst ekki síst í því að þessi ógn fylgir honum. Hann þarf ekki á græjunum að halda.“+

Heillaðist af Íslandi

Mikkelsen dvaldi á Íslandi í tvo mánuði þegar hann lék í Vild spor fyrir nokkrum árum og heillaðist af landi og þjóð eins og svo margri aðrir. „Ég get í fullri einlægni sagt að Ísland er fallegasti staður sem ég hef komið til. Ég hef ekki komið aftur en er alltaf á leiðinni og við höfum oft rætt það í fjölskyldunni að fara til Íslands og dvelja þar lengi. Ísland er töfrandi staður og svo fallegt og fjölbreytt þó það sé lítið. Fólkið er líka gestrisið og vingjarnlegt. Þið eruð mjög sjálfsörugg og stolt í besta skilningi þeirra orða. Þegar maður hefur þetta stolt verður maður hlýr og tekur fólki opnum örmum. Þeir sem óttast eitthvað loka hins vegar að sér. Ísland er besta land sem ég hef komið til á ævinni.“


| 1:41 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff