»  skrif  »  Ég er fáviti

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Ég er fáviti
Miðvikudagur, 10. janúar 2007

Ég er einföld manneskja og eyði tíma mínum yfir Skjá einum, drekk brennivín á virkum dögum og hangi á netinu. Ég er samt til og hugsa þótt tilvera mín sé ekki eftirsóknarverð eða spennandi. Ég er með alveg helling af skoðunum og veit ýmislegt betur en þið hin. Stjórnmálamennirnir sem eru alltaf að gaspra í sjónvarpinu eru fífl og fallega og fræga fólkið í Séð&heyrt og Mannlífi eru kórónaðir fábjánar sem eiga upphaf sitt og endi á glanspappírnum. Gervimanneskjur.

Þetta veit ég vegna þess að ég er alvöru maður. Venjulegur maður sem keyrir enn á sumardekkjum, skuldar tryggingar og átti að fara með bílinn í skoðun fyrir hálfu ári. Ég veit þetta allt vegna þess að ég kaupi matinn minn í Bónus og borða fiskbollur upp úr dós.

Sjálfsmynd mín er dælduð og mér líður ekki vel en samt er ég yfir þetta pakk hafinn enda er ég ekta þrátt fyrir allt.
Internetið hefur sem betur fer gefið mér tækifæri til þess að tjá mig og láta í mér heyra en áður en spjallrásirnar þar opnuðu var ég að springa af því ég þurfti að byrgja allar mínar meiningar innra með mér. Málefnin.com breyttu á sínum tíma lífi mínu og þar hef ég fengið útrás í nokkur ár. Þrasað við fólk á mínu plani og látið ráðamenn kenna á písknum mínum. Nú er þetta ball búið vegna þess að allir nafnlausu vinir mínir þarna eru búnir að stofna Moggablogg og tjá sig nú undir eigin nafni og jafnvel mynd og fá meiri athygli en ég þoli. Mér finnst ég ekki nógu klár til að stofna Moggablogg. Ekki enn.

Ég hef samt sem betur fer fundið mér enn betra athvarf á Barnaland.is. Þar hefur safnast saman fólk sem er verr statt andlega en ég og slúðrar um fallega og fræga fólkið. Ég þekki samt enga fræga en er búinn að vera duglegur að búa til sögur sem hitt liðið étur upp og finnst ég vera ógeðslega vel tengdur. Þarna er ég kóngur í ríki mínu og samt á ég ekki einu sinni börn og hef aldrei skipt á kúkableyju.


| 10:27 |
komment

Þessi pistill er "brilljant", gjörsamlega ég held ég hafi ekki eitt undan tekið orð annað en "brilljant".

Kannski í leiðinni vill ég þakka þér fyrir skrifin þín í fréttablaðið þau hafa létt mér lindina á erviðistu tímum, að finna þetta blogg var eins og að komast í fjarsjóð. Takk fyrri takk takk
Pétur
Sigurbjarts

Nr. 1 | Pétur Sigurbjartsson | 19.01.2007 | 21:26:39 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff