»  skrif  »  Útópía

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Útópía
Miðvikudagur, 24. janúar 2007

Kvikmyndin Children of Men hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli, ekki síst vegna þess hversu grimm framtíðarsýn hennar er. Í myndinni er mannkynið hætt að fjölga sér og allt stefnir því í ragnarök á einum mannsaldri eða svo. Við munum deyja út og myndinni hefur því verið lýst sem dystópíu. Útópíu með öfugum formerkjum.
Ég get engan veginn tekið undir þetta sjónarmið þar sem grunnhugmyndin að baki Children of Men er að mínu mati fullkomin útópía enda getur fátt gert heiminn betri en útdauði mannkyns.

Við höfum hvort eð er öll, óháð hörundslit og trúarbrögðum, getað sameinast um það eitt að skila heiminum til komandi kynslóða í verra ástandi en við tókum við honum. Eigingirni og græðgi einkenna allt mannanna brölt. Öll auðsöfnun, arðrán og náttúruspjöll yrðu hins vegar með öllu tilgangslaus ef enginn yrði til þess að erfa ósköpin og halda eyðileggingunni áfram.

Barneignir eru því í raun undirrót alls ills þó að rómantískar hugmyndir um ótal kraftaverk á degi hverjum hafi byrgt fólki sýn á þessa augljósu staðreynd. Ef við myndum öll fallast á að hætta að viðhalda stofninum gætum við sem fyrir erum hætt að horfa til framtíðar og beðið róleg eftir því að deyja út.
Landvinningar yrðu einskisverðir, þjóðarmorð óþörf þar sem við værum öll á útleið og öllum yrði slétt sama um hver ætti kvótann.

Nýrýkir auðmenn gætu haldið áfram að borga útbrunnum poppurum formúur fyrir stundarskemmtun án þess að nokkur þyrfti að hneykslast enda ekkert annað að gera en eyða öllum peningunum á meðan tími gefst til.
Síðasti maður út myndi svo slökkva ljósin og með tímanum myndi náttúran, mölur og ryð granda öllum stálstyrktu og steinsteyptu minnisvörðunum um græðgi okkar og heimsku. Dýr merkurinnar myndu aftur ríkja og án okkar yrði jörðin paradís.


| 10:08 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff