»  skrif  »  Blóðugur ferill hrollvekjumeistara

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Blóðugur ferill hrollvekjumeistara
Sunnudagur, 11. febrúar 2007

Úr leikskrá Misery á NASA


Stephen King er óumdeildur konungur hryllingsbókmenntanna og hefur setið í hásæti sínu í rúm 30 ár en fyrsta skáldsaga hans, Carrie, kom út árið 1974. Vinsældir hans jukust hratt og örugglega í kjölfar þessarar blóðugu sögu eineltisfórnarlambs sem nær fram grimmilegum hefndum á kvölurum sínum með fjarhrifum. King festi sig síðan í sessi ári síðar með blóðsugusögunni Salem´s Lot sem kallast skemmtilega á við Dracula sem Bram Stoker skrifaði 1897.

Stephen King er fæddur árið 1947 í Portland í Maine og þar hefur hann búið mestan hluta ævinnar og fundið fjölmörgum sögum sínum stað þar, ekki síst í ímyndaða smábænum Castle Rock.
Þegar Carrie kom út vann King fyrir sér sem enskukennari, þénaði 6.400 dollara á ári og bjó með fjölskyldu sinni í hjólhýsi. Í dag veit hann ekki aura sinna tal og býr enn með Tabithu, eiginkonu sinni, í Maine en börnin þeirra þrjú eru löngu uppkomin.

King er með eindæmum afkastamikill rithöfundur og frá 1975 dældi hann út hryllingnum, gaf út í það minnsta einn langhund á ári. The Shining kom út 1977, The Stand 1978, The Dead Zone 1979 og Firestarter 1980. Árið 1981 sleppti hann morðóða hundinum Cujo lausum og 1983 steig hann bensínið í botn á morðóða kagganum Christine og fór hamförum í Pet Sematary.

Með þessum verkum Kings ávann hrollvekjan sér á ný lýðhylli í bókmenntum og þó margir rithöfundar hafi fylgt þeirri braut sem hann ruddi hrollvekjunni inn í samtíman ber hann enn höfuð og herðar yfir alla sporgöngumenn sína og er einn söluhæsti rithöfundur allra tíma.

Kvikmyndagerðarmenn voru eðlilega fljótir að átta sig á að hugverk Kings hentuðu vel til þess að skjóta bíógestum skelk í bringu og allar ofantaldar skáldsögur hans hafa verið kvikmyndaðar, sem og nánast allt annað sem hann hefur sent frá sér á prenti.

Leikstjórinn Brian De Palma reið á vaðið þegar hann kvikmyndaði Carrie 1976 og meistari Stanley Kubrick tók The Shining sínum tökum árið 1980 og hafði varanleg áhrif á hryllingsmyndabransann með nálgun sinni þó að King sjálfur kynni honum litlar þakkir.

Kvikmyndaútgáfur verka Kings eru æði misjafnar að gæðum og í öllum þessum aragrúa kvikmynda leynist oft á tíðum ótrúlegt drasl. Stundum er við kvikmyndagerðarfólkið að sakast þó ekki sé hægt að horfa framhjá því að King er sjálfur oft mistækur og það er síður en svo trygging fyrir gæðum kvikmynda að þær tengist nafni Kings. Myndir eins og The Shining, Stand By Me, Misery, The Shawshank Redemption og The Green Mile standa upp úr en þar tókst handritshöfundum og leikstjórum að vinna sérstaklega vel úr verkum höfundarins.

Stand By Me, Misery og The Shawshank Redemption eiga það sameiginlegt að þar lætur King allt yfirnáttúrulegt eiga sig en þó að fantasían taki öll völd í meirihluta verka hans er hann yfirleitt bestur með báða fætur á jörðinni og getur vel skrifað um venjulegt fólk í óvenjulegum aðstæðum, án þess að draugar, morðóðir bílar eða afturgengin gæludýr komi við sögu.

King er nefnilega ágætis rithöfundur þó að verk hans séu yfirleitt flokkuð sem hreinræktuð afþreying og því hálfgert rusl. Hann skrifar oft á tíðum skemmtilegan og lipran texta og getur, þegar vel liggur á honum, skapað áhugverðar persónur sem auðvelt er að heillast af og fá samúð með. Hryllingurinn er því oft lítið annað en umgjörð utan um sögur af fólki sem glímir við sömu vandamál og á í sömu innri baráttu og það fólk sem “alvöru” rithöfundar kryfja í verkum sínum.

King sýnir sínar bestu hliðar í Misery, þar sem hann keyrir upp magnaða spennu um leið og hann kafar ofan í hugarheim geðsjúks morðingja um leið og hann leikur sér með innri togstreitu rithöfundar sem vill brjótast undan oki fyrri verka sinna og hætta en getur það ekki.

Í Misery neyðist rithöfundurinn Paul Sheldon til þess að skrifa til þess að halda lífi og kaupir sér grið hjá brjálæðingnum Annie Wilkes með því að fóðra hana á köflum í rómantískri ástarsögu. Sagan átti síðar eftir að kallast á við líf Kings á undarlegan hátt en árið 1999 stórslasaðist hann þegar sendiferðabíll ók hann niður.

Eftir erfiða sjúkralegu lýsti King því yfir að hann myndi hætta að skrifa þegar hann væri búinn að hnýta nokkra lausa enda og ljúka við sagnabálk sinn The Dark Tower. Hléið sem hann gerði á skrifunum stóð þó ekki lengi því hann hefur tekið upp fyrri iðju og sendi nýlega frá sér tvær skáldsögur; The Cell og Lisey´s Story. Hann er vitaskuld ekki jafn illa settur og Sheldon þar sem hann hefur ekki morðóðan brjálæðing yfir sér sem hvetur hann áfram með því að sveifla exi yfir höfði hans en það er þó deginum ljósara að hryllingurinn heldur meistara sínum í heljargreipum og hann getur ekki hætt.


| 23:47 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff