Tóti sjálfur

Bada Bing! er flottasti súlustaður í heimi. Þar heldur hinn þéttholda Tony Soprano til ásamt mögnuðu mafíósagengi sínu, fyrirskipar limlestingar og morð á milli þess sem hann skiptir gróðanum af vændi, eiturlyfjasölu og annari skipulagðri spillngu.

BadaBing.is er ekki jafn heillandi enda bara varnarþing Þórarins Þórarinsonar blaðamanns sem dældi bensíni hjá Essó samhliða námi í íslensku og almennri bókmenntafræði við HÍ þar til sjéntílmaðurinn Ásgeir Friðgeirsson réði hann sem blaðamann á fréttavefnum Vísi.is árið 1999. Netbólan var heldur betur að tútna út um þetta leyti og Vísir.is, sem þá var í eigu Frjálsrar fjölmiðlunnar (RIP), var spennandi dæmi og almennt nokkuð vel mönnuð skúta.

Árið 2000 dró nokkuð úr metnaði og fjárstreymi á Vísi og vistin varð heldur dapurleg. Þá kom Ásgeir aftur til bjargar og réð Þórarinn síðla árs á vefgáttina Strik.is sem Íslandssími, með sjálfan Eyþór Arnalds í brúnni, hafði sett á laggirnar. Þá tóku við líflegir tímar sérstaklega eftir að Ásgeir leiddi saman Hrafn Jökulsson og Þórarinn sem skemmtu sér báðir konunglega með hressandi blaðamennsku á Pressunni og Bókavef Striksins en sá fyrrnefndi ritstýrði báðum vefjum með miklum krafti. Þetta samstarf entist þar til netbólan sprakk með miklum látum árið 2002 og Strikið lognaðist út af.

Þá var ekki um annað að ræða en að ráða sig á Fréttablaðið sem var það að verða eins árs um þetta leyti. Blaðið fór hins vegar á hausinn skömmu síðar og Þórarinn fór í framhaldinu á atvinnuleysisbætur í tvo mánuði áður en hann réð sig á endurreist Fréttablaðið þar sem hann hefur haldið sig síðan og mun gera það þar til annað kemur í ljós en eins og Yoda segir: "Difficult to see. Always in motion is future."

Þórarinn notar off record bloggið til þess að fá útrás fyrir gremju og annarlegar hvatir og mun reyna að halda skítkasti og árásum á menn og málefni innan þess en þar fyrir utan er síðan er ekki síst hugsuð sem persónulegur gagnagrunnur en hún heldur utan um nánast öll skrif Þórarins frá 1999  en auk alls kyns nöldurpistla fer þar mest fyrir fjölmiðlapistlum, kvikmyndagagnrýni og umfjöllun um bókmenntir og myndasögur.